Sport

Treyja Maldini hengd upp

Adriano Galliani, varaforseti AC Milan, hefur lýst því yfir að treyja númer 3 sem Paolo Maldini hefur leikið í hjá félaginu síðustu 20 ár verði ekki notuð aftur þegar hann leggur skóna á hilluna. Maldini er í guðatölu í Mílano og hefur unnið alla titla með félaginu sem hægt er að vinna. Áður hefur treyja númer 6 verið frátekin til heiðurs varnarjaxlinum Franco Baresi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×