Verðbólga við vikmörk Seðlabanka 13. janúar 2005 00:01 MYND/Vísir
Hækkun á vísitölu neysluverðs frá fyrra mánuði gengur þvert á spár greiningardeilda bankanna. Verðbólga nú 4%, sem við efri vikmörk verbólgumarkmiðs Seðlabanka Íslands, og greiningardeild Íslandsbanka telur líklegt að verðbólga fari upp fyrir vikmörkin á næstu mánuðum en hjaðni svo og verði 2,1% yfir þetta ár. Eftir því sem fram kemur í morgunkorni Íslandsbanka höfðu bankarnir spáð því að vísitalan myndi lækka um 0,1 til 0,3% en hún hækkaði um 0,08%. Þar kemur enn fremur fram að skekkju á spám megi skýra nær eingöngu með mikilli hækkun á húsnæðisverði. Markaðsverð húsnæðis hafi hækkað um 2,9% en Íslandsbanki hafi reiknað með 1,7% hækkun. Hækkun komugjalda, orkuverðs, leikskólagjalda, sjónvarpsáskriftar, skólagjalda, svo eitthvað sé nefnt, hafi þó einnig haft áhrif. Útsölur og lægra bensínverð vógu hins vegar upp á móti hækkununum og drógu þannig úr hækkun á neysluverðsvísitölu. Verðbólga er nú 4% og hefur aukist um 0,1% frá því í desember. Segir í morgunkorninu að verðbólga hafi aukist verulega að undanförnu og afar líklegt sé að hún fari yfir efri vikmörk verðbólgumarkmiðs Seðlabankans á næstu tveimur mánuðum. Á móti verðbólguþrýstingi vegi hins vegar að gengi krónunnar hafi hækkað verulega undanfarið og sé nú mjög hátt. Miðað við óbreytt gengi krónunnar muni verðbólga hjaðna á árinu og líklega mælast um 2,1% yfir þetta ár.
Fréttir Innlent Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira