Innlent

Atvinnuleyfi verði afgreidd fljótt

Forstjóri Vinnumálastofnunar býst við því að atvinnuleyfi sem Impregilo sótti um fyrir fimmtíu og fjóra Kínverja verði afgreidd síðar í dag eða á morgun. Forstjóri Vinnumálastofnunar situr nú á fundi með fulltrúum Impregilo vegna málsins. Talsmaður fyrirtækisins segir að það hafi greitt tæpan milljarð í skatt hér á landi. Verkefnastjóri ítalska verktakafyrirtækisins Impreglio og fjármálastjóri fyrirtækisins funduðu með félagsmálaráðherra fyrir hádegi og þar var vísað á bug ásökunum Alþýðusambands Íslands á hendur fyrirtækinu um að það brjóti gegn samningum. Fulltrúar fyrirtækisins sitja þessa stundina fund með Gissuri Péturssyni, forstjóra Vinnumálastofnunnar, en fundurinn hófst klukkan ellefu. Fyrir fundinn sagðist Gissur búast við að atvinnuleyfi fyrir þá 54 Kínverja, sem Impregilo hefði sótt um vegna framkvæmdanna við Kárahnjúka, yrðu afgreidd í dag eða á morgun. Í greinargerð sem Alþýðusambands Íslands sendi félagsmálaráðherra vegna málsins segir að málefni Impregilo varði vinnumarkaðinn í heild, kjör og réttindi fólks og þær reglur og samskipti sem gildi milli stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins. Tekist sé á um þá sátt og henni ógnað með alvarlegum hætti. Í greinargerð Alþýðusambandsins segir einnig að upplýsingar hafi borist um fjölda Íslendinga sem hafi sótt um störf hjá ítalska verktakafyrirtækinu að undanförnu en ekki verið sinnt eða verið hafnað. Telur ASÍ að veiting atvinnuleyfa, á grundvelli umsókna fyrirtækisins, brjóti í bága við verklagsreglur Vinnumálastofnunar. Skattamál Impregilo hafa verið harðlega gagnrýnd. Ómar Valdimarsson, talsmaður Impregilo, segir ásakanir á hendur fyrirtækinu um skattsvik afar ósanngjarnar. Félagið hafi greitt um 50 milljónir í skatta mánaðarlega og portúgalskar starfsmannaleigur um 20 milljónir á mánuði. Frá því í júlíbyrjun 2003 fram til nóvember 2004 hafi Impregilo greitt íslenskum skattayfirvöldum rúmlega 855 milljónir króna í staðgreiðsluskatta og tryggingargjald vegna starfsmanna við Kárahnjúka og portúgölsku starfsmannaleigurnar Select og Nett hafi greitt um 130 milljónir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×