Mótmælir ásökunum um skattsvik 12. janúar 2005 00:01
Impregilo hefur sent frá sér tilkynningu vegna ásakana um að fyrirtækið hafi ekki greitt skatta hér á landi. Þar segir að fullyrðingar um skattsvik séu ósannar, ómaklegar og ósmekklegar og að fyrirtækið hafi greitt rúmlega 855 milljónir í skatta frá júlíbyrjun 2003 fram í nóvember 2004. Í fréttatikynningunni segir: „Ásakanir um skattsvik á hendur fyrirtækinu ótrúlega ósanngjarnar. Félagið greiðir um 50 milljónir í skatta mánaðarlega. Portúgalskar starfsmannaleigur greiða um 20 milljónir mánaðarlega. Frá júlíbyrjun 2003 fram í nóvember 2004 greiddi Impregilo íslenskum skattayfirvöldum 855.718.144 krónur í staðgreiðsluskatta og tryggingagjald vegna starfsmanna við Kárahnjúka. Ásakanir um að fyrirtækið svíki undan sköttum eru ósannar, ómaklegar og ósmekklegar. Portúgölsku starfsmannaleigurnar Select og Nett höfðu í nóvember 2004 greitt íslenskum skattayfirvöldum 60.028.612 (Select) og 70.076.859 (Nett) vegna staðgreiðsluskatta og tryggingagjalds sinna starfsmanna. Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum deilir Impregilo við skattayfirvöld um ákveðin atriði er varða skattlagningu portúgalskra starfsmanna Select og Nett. Impregilo lítur á starfsmennina sem starfsmenn starfsmannaleiganna, en ekki sína starfsmenn. Fyrirtækin líta því svo á að Select og Nett eigi að sjá um skattgreiðslur vegna portúgalskra verkamanna hér á landi, ekki Impregilo. Máli sínu til stuðnings hefur Impregilo bent á að starfsmannaleigurnar greiða þessum mönnum laun, samkvæmt portúgölskum ráðningarsamningum þeirra. Með samkomulagi sem náðist við verkalýðshreyfinguna í október 2003 er tryggt að þessum mönnum séu a.m.k. greidd laun sem nema íslenskum kjarasamningum. Ríkisskattstjóri heldur því hins vegar fram að starfsmenn starfsmannaleiganna séu starfsmenn Impregilo. Select og Nett telja að portúgalskir starfsmenn sem starfa hér skemur en í 183 daga á ári séu ekki skattskyldir á Íslandi, heldur beri þeim að greiða skatta í Portúgal eins og fram kemur í tvísköttunarsamningi þjóðanna. Tvísköttunarsamningur á milli Íslands og Portúgal var staðfestur árið 2002 og öðlaðist gildi 1. janúar 2003. Ríkisskattstjóri setti fram í byrjun árs 2005 þá kröfu, fyrir Yfirskattanefnd, að tvísköttunarsamningurinn væri ekki talinn hafa verið í gildi árið 2003, þar sem dregist hafði að auglýsa hann á Íslandi. Þessi málsástæða kom ekki fram árið 2004, enda er kenningin ný og í andstöðu við fyrri framkvæmd er varðar gildistöku annarra tvísköttunarsamninga sem Ísland hefur gert, samkvæmt upplýsingum skattasérfræðinga félaganna. Vegna þessarra mála hefur Impregilo óskað eftir að Yfirskattanefnd úrkurði í málinu. Ekki er ólíklegt að úrskurður fáist síðar í þessum mánuði.“
Fréttir Innlent Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira