Slys í Bandaríkjunum vekur ótta 9. janúar 2005 00:01
Níu létust í Suður-Karólínu í Bandaríkjunum þegar fragtlest sem flutti klór rakst á aðra kyrrstæða á fimmtudag og klórgas komst í andrúmsloftið. Um 250 manns þurftu læknisaðstoð og 5,400 íbúum var gert að rýma hús sín í flýti í tæplega tveggja kílómetra radíus. Þeir fá ekki að snúa heim fyrr en í fyrsta lagi á þriðjudag. Enn er reynt að stöðva lekann, samkvæmt fréttum Associated Press, AP. Íbúar í Kópavogi hafa hringt og lýst áhyggjum sínum við Fréttablaðið af veru klórgasverksmiðju Mjallar-Friggjar í Vesturvör í Kópavogi. Ekkert er vitað um framleiðslu fyrirtækisins en vitað er að þegar fyrirtækið flutti frá Fosshálsi í Reykjavík fylgdu þrýstihylki með klórgasi og hófst vinnsla án tilskilinna leyfa. Sótt var um leyfi til klórframleiðslu. Því var hafnað af Heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar og Kópavogs. Bæjarráð hefur málið til skoðunar og ætlar að álykta um það 13. janúar. Guðmundur H. Einarsson, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar og Kópavogs, segir fyrirtækið fá að klára þær birgðir sem það flutti með sér. Heilbrigðiseftirlitið viti hvorki hve miklar þær séu né hvort þær séu geymdar á öruggan hátt. Það sé í verkahring slökkviliðsins en litlar líkur séu á slysi. Bjarni Kjartansson, yfirmaður eldvarnareftirlits slökkviliðsins, segir bráðabirgðaúrbætur hafa verið gerðar á eldvörnum hússins. Þær séu vel ásættanlegar. Í mesta lagi séu sex tonn af klóri í vinnslu og sex tonn í gámi á svæðinu: "Við höfum skyldu samkvæmt lögum að bregðast við ef slys verður með hættuleg efni. Við höfum hins vegar ekkert að segja um umbúnað og varnir gegn því, það er í umsjón vinnueftirlits og heilbrigðiseftirlits, nema hvað varðar brunaþáttinn. Það segir sig sjálft að eldsvoði í húsi sem hefur að geyma umtalsvert magn af hættulegum efnum getur orðið að umhverfisslysi." Ekki fékkst samband við Hinrik Morthens, eiganda eignarhaldsfélags Filtertækni og Mjallar-Friggjar. Sagt var að hann kysi að svara ekki fjölmiðlum.
Fréttir Innlent Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira