Sport

Milan vill kaupa Crespo

AC Milan hafa hafið samningaviðræður við Chelsea um að tryggja sér krafta argentínska sóknarmannsins Hernan Crespo áfram, en Crespo er sem stendur á lánssamningi hjá ítalska liðinu. Talið er að Milan muni bjóða Chelsea georgíska bakvörðinn Khaka Kaladze og hinn íslenskættaða Dana, Jon Dahl Tomasson sem einhvern hluta af kaupverðinu. Crespo kom til Milan í sumar eftir erfitt tímabil með Chelsea þar sem hann náði sér ekki á strik. Hann byrjaði reyndar á sömu nótunum hjá Milan, en hefur allur verið að koma til og hefur núna skorað níu mörk í sextán leikjum. Þrenna hans um helgina gegn Lecce virðist hafa sannfært stjórnarmenn Milan.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×