Stuðla að betra málfari 10. janúar 2005 00:01
Ekki segja „ókei“, heldur allt í lagi, ekki segja „bæ, bæ“, heldur „veriði bless“. Þetta er meðal þess sem Pétur Pétursson þulur og Eyjólfur Jónsson sundkappi, ásamt fleirum, ræddu við börnin á Barónsborg í dag. Það er kunnara en frá þurfi að segja að íslensk tunga er Pétri hugleikin og fékk hann því félaga sinn Eyjólf, Þorgerði Ingólfsdóttur kórstjóra og Helgu Steffensen og brúðuleikhúsið hennar til að fjallað um íslenskt mál við börnin á Barónsborg við Barónsstíg. Það var sungið og spjallað og leikið brúðuleikhús. Meðal þess sem áhersla var lögð á var að kenna börnunum að hætta að segja „ókei“ og „bæ, bæ“, en þess í stað „allt í lagi“, „komdu sæll“ og „vertu sæll“. Pétur er þó ekki viss um að „ókei“ og „bæ, bæ“ sé horfið úr málinu hjá börnunum, enda Róm ekki byggð á einum degi og íslenskt móðurmál ekki endurbætt á jafnskömmum tíma. „En andófið verður að vera,“ segir Pétur. Þessi hópur ætlar víðar, í fleiri leikskóla, áður en Eyjólfur heldur til síns heima en hann býr nú í Ástralíu. Í framhaldinu vona þeir að einhver taki við keflinu. Það er kannski ástæða fyrir smá bjartsýni í þessum efnum því Eyjólfur segir að þegar hann var strákur í Þrótti og var að spila fótbolta við bresku hermennina skildu strákarnir ekki þetta „ókei“ sem Bretarnir voru alltaf að segja svo þeir kenndu hermönnunum að segja „allt í lagi“. Þannig að ef hægt er að koma því inn í ensku hlýtur að vera hægt að losa íslenskuna við „ókei“.
Fréttir Innlent Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Konan sem var borin út er látin Erlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Fleiri fréttir Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Sjá meira