Innlent

Nýr vefur sýslumanna

Sýslumannafélag Íslands hefur í samstarfi við dóms- og kirkjumálaráðuneytið opnað nýjan vef, syslumenn.is, sem inniheldur upplýsingar um verkefni sýslumanna og ýmsar leiðbeiningar til þeirra sem til embætta sýslumanna þurfa að leita. Á vefnum er einnig hvert embætti fyrir sig með eigin síðu þar sem helstu upplýsingar um starfsemi þess koma fram. Sýslumaðurinn í Reykjavík og í Keflavík eru að auki með eigin vefsvæði þar sem ítarlegri upplýsingar um þau embætti er að finna, að því er segir á vef ráðuneytisins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×