Íslensk lög á útlensku 26. febrúar 2005 00:01
Lagaskylda um að öll lög og reglugerðir sem gilda á Íslandi skuli vera á íslenskri tungu verður afnumin með frumvarpi dómsmálaráðherra sem er í lokameðferð Alþingis. Íslensk málnefnd varar alvarlega við lagabreytingunni. Vegna aðildar Íslands að evrópska efnahagssvæðinu streyma til landsins samevrópsk lög og reglugerðir sem taka gildi á Íslandi. Samkvæmt stjórnarfrumvarpi Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra, eins og það lítur út við þriðju og síðustu umræðu í þinginu, verður afnumin lagaskylda um að þýða alla þessa texta yfir á íslensku. „Heimilt er að birta eingöngu erlendan frumtexta milliríkjasamnings ef samningurinn varðar afmarkaðan hóp manna sem með sanngirni má ætlast til að skilji hið erlenda mál vegna menntunar sinnar eða annarrar sérhæfingar,“ segir í frumvarpstexta. Aðrar greinar frumvarpsins veita einnig Alþingi sjálfu og ráðherra heimild til að veita undanþágur frá þýðingarskyldu. Íslensk málnefnd varar alvarlega við þessum undanþágum. Guðrún Kvaran, formaður nefndarinnar, segir að þótt talað sé um afmarkaðan hóp manna þá séu svo margir litlir hópar í okkar fámennisþjóðfélagi sem gæti endað með því hver hópurinn á fætur öðrum fái undanþágur í þessa veru. Í umræðum á Alþingi hafa verið nefnd dæmi um lagareglur sem ráðuneytismenn vilja losna við að þýða, eins og reglur um evrópska þjóðhagsreikninga, tilskipun um flutninga á hættulegum efnum og ákveðnar flugreglur. Guðrún segir að erlendis séu menn mjög hræddir um að ákveðin svið hverfi úr móðurmálinu og yfir til enskunnar. Þær áhyggjur séu einnig til staðar hér á landi. Hún segist ekki vita af hverju þessi lagabreyting sé til meðferðar, hvort sé það vegna skorts á fé eða hreinlega vegna leti. „Ef þetta snýst um peninga þá verðum við að kyngja því að það er dýrt að vera fámenn þjóð,“ segir Guðrún.
Fréttir Innlent Mest lesið Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Innlent Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Innlent Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Erlent Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Erlent Pallaball fram á rauðanótt: „Farðu og finndu fólkið þitt!“ Innlent Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Erlent Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Innlent Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Innlent Alelda bíll á Emstruleið Innlent Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Innlent Fleiri fréttir Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Pallaball fram á rauðanótt: „Farðu og finndu fólkið þitt!“ Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Vond staða Úkraínu, furðukenning um geimverur og Gleðigangan Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Alelda bíll á Emstruleið Vond niðurstaða Úkraínu, ásakanir á hendur sáttasemjara og síðasta hlaupið Mikill meirihluti hefur áhyggjur af stríðsátökum Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Ekki stafi lengur tilvistarógn af Hamasliðum Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Féll fjóra metra í vinnuslysi í Kópavogi Ómeðvitaðir ferðamenn í Reynisfjöru, síbökuð hjón og tölvuspil fram á nótt Enginn árangur af „veiða og sleppa“ aðferðinni Flokkarnir dæla milljónum í áróður á Meta Hræðast að fleiri en einn fari í sjóinn Átökin „hvorki vegna né þrátt fyrir“ áfengissöluna Heitavatnslaust í Laugardal Lést við flúðasiglingar í Vestari-Jökulsá Langflestir telja sig búa á góðum stað fyrir samkynhneigða Áttu ekki von á neinu veseni og viðbúnaður eftir því Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Maður féll í Vestari-Jökulsá Fangar í einangrun vegna sama máls noti ekki sama útisvæði Hundarnir þegar aflífaðir en ákvörðun um lógun ólögmæt Samskipti fanga í einangrun, tapsárir Danir og drottning Gleðigöngunnar Allir fundir við ESB „fyrst og fremst“ hagsmunagæsla Telja að lífvörður myndi aðeins gera ferðamenn kærulausari Sjá meira