Fyrra mat gildir ekki fyrir Alcoa 12. janúar 2005 00:01
lver Alcoa í Reyðarfirði verður að fara í nýtt umhverfismat. Héraðsdómur Reykjavíkur ómerkti í dag úrskurð umhverfisráðherra um ákvörðun Skipulagsstofnunar um að fyrra mat á álveri, sem Norsk Hydro hugðist reisa, gilti einnig fyrir Alcoa. Hjörleifur Guttormsson, sem stefndi ríkinu og Alcoa, fagnar niðurstöðunni. Hjörleifur Guttormsson, fyrrverandi alþingismaður, sem stefndi Alcoa, Reyðaráli og íslenska ríkinu vegna fyrirhugaðs álvers í Reyðarfirði krafðist þess meðal annars að héraðsdómur ómerkti úrskurð umhverfisráðherra frá því árið 2003, sem staðfesti ákvörðun Skipulagsstofnunar um að 322 þúsund tonna álver þyrfti ekki að fara í umhverfismat. Hjörleifur taldi að Skipulagsstofnun bæri að meta áhrif álvers Alcoa í stað þess að byggja á fyrra mati á álveri, sem Norsk Hydro hugðist reisa á svæðinu, þar sem Alcoa gerði ráð fyrir lakari mengunarvörnum en álver Norsk Hydro. Héraðsdómur taldi að samkvæmt gögnum Alcoa myndi útblástur á brennisteinsdíoxíði margfaldast miðað við það sem áður hefði verið gert ráð fyrir. Dómurinn benti á að álver væru, lögum samkvæmt, fortakslaust matsskyld og hlyti veruleg breyting á aðferðum og hreinsunarbúnaði álversins að geta haft umtalsverð áhrif á umhverfið. Var það álit dómara að úrskurður umhverfisráðherra, sem staðfesti ákvörðun Skipulagsstofnunar, væri andstæður lögum og var því fallist á kröfu Hjörleifs. Hjörleifur segir að sér sýnist dómurinn nokkur tíðindi og hann sjái ekki betur en að álverið í Reyðarfirði þurfi að fara í sjálfstætt umhverfismat. Það hafi sannarlega verið ómaksins virði að fara með málið fyrir dóm, fyrir utan það að frammi liggi yfir 100 málsskjöl sem séu góð og gild fyrir eftirleikinn og söguna. Héraðsdómur vísaði frá kröfu Hjörleifs um að ómerkja ákvörðun umhverfisráðherra um útgáfu starfsleyfis fyrir álver í Reyðarfirði.
Fréttir Innlent Mest lesið Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman Innlent Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Innlent Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Erlent Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Innlent „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Innlent Á fjórða hundrað hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda Erlent Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent Fleiri fréttir Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Sjá meira