Mikið tap vegna drollaraskapar 12. janúar 2005 00:01
Ný innisundlaug var opnuð í Salaskóla í Kópavogi í dag, einu og hálfu ári á eftir áætlun. Aðalverktaki verksins var lýstur gjaldþrota í síðasta mánuði og oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi segir bæjarfélagið hafa tapað að minnsta kosti eitt hundrað milljónum króna á þessum drollaraskap. Það má segja að bygging íþróttamannvirkisins sé ein hrakfallasaga. Það eru tvö ár síðan skrifað var undir samning um byggingu sundlaugarinnar í Salahverfi. Þá var fyrirhugað að laugin skyldi opnuð í september árið 2003, fyrir tæpu einu og hálfu ári. Fljótlega fór hins vegar allt að ganga á afturfótunum. Stjórnendur Kópavogsbæjar létu hins vegar sem ekkert væri og í júní í fyrra sagði Gunnar Birgisson, oddviti Sjálfstæðismanna, að laugin yrði opnuð í ágúst þótt honum mætti ljóst vera, manni með mikla reynslu af slíkum framkvæmdum, að slíkt myndi ekki standast. Þá þegar var orðið ljóst að aðalverktakinn, Ólafur og Gunnar byggingarfélag, ætti í rekstrarörðugleikum enda barst Héraðsdómi Reykjavíkur beiðni um að úrskurða félagið gjaldþrota í júlí í fyrra. Kópavogsbær lét Ólaf og Gunnar engu að síður halda verkinu áfram og í september sagði Sigurður heitinn Geirdal, þáverandi bæjarstjóri, í samtali við fréttastofu að laugin yrði opnuð í október. Það gerðist ekki og þann 1. desember var verktakinn tekinn til gjaldþrotaskipta og yfirtók Kópavogsbær þá framkvæmdina. Flosi Eiríksson, oddviti Samfylkingarinnar í bænum, segir ljóst að loforð við bæjarbúa hafi verið svikin. Að hans mati hafi forystumenn Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins í haust lofað upp í ermina á sér varðandi það hvenær laugin yrði opnuð þó að þeim hafi verið það vel ljóst að það myndi aldrei standast. Hann segist ekki sjá betur en að þetta hafi í för með sér 100 milljóna króna viðbótarkostnað fyrir bæjarbúa út af drollaraskap. Flosi ætlar að spyrjast fyrir um framkvæmd þessa verks á fundi bæjarráðs á morgun. Í morgun sem fyrstu börnin fóru ofan í innisundlaugina í Salakóla en líkamsræktarstöðin þar verður tekin í gagnið eftir nokkra daga. Útisundlaugin verður svo opnuð almenningi með vorinu.
Fréttir Innlent Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira