Ríkið áfrýjar dómi ME 12. janúar 2005 00:01
Íslenska ríkið hefur í fyrsta sinn áfrýjað dómi Mannréttindadómstóls Evrópu. Stjórnvöld una því ekki að hafa verið dæmd til að greiða fyrrverandi sjómanni átta milljónir króna í skaðabætur fyrir mannréttindabrot. Fyrir sléttum þremur mánuðum komst Mannréttindadómstóll Evrópu að þeirri niðurstöðu að íslenska ríkið hefði brotið gegn ákvæðum Mannréttindasáttmála Evrópu. Brotin felast í að dómstólar landsins staðfestu að Lífeyrissjóði sjómanna væri heimilt að svipta Kjartan Ásmundsson bótum vegna slyss sem hann varð fyrir sem ungur sjómaður á grundvelli nýrra laga. Ríkið tók sér allan þann tíma sem það hefur, þrjá mánuði, til að ákveða hvort dóminum yrði áfrýjað en Skarphéðinn Þórisson ríkislögmaður sagði í samtali við fréttastofu í dag að eingöngu skaðabótaþætti málsins væri áfrýjað. Hann telur dóminn vera byggðan á röngum forsendum þar sem Kjartan hefði ekki orðið fyrir fjárhagslegu tjóni. Hins vegar er langt í frá öruggt að Mannréttindadómstóllinn samþykki að taka málið til skoðunar öðru sinni og hafa sérfróðir menn í þessum efnum bent á að það sé einungis gert í málum sem hafa afgerandi mikla þýðingu, til að mynda milliríkjadeilur og annað sambærilegt. Af þessu tilefni hefur Lilja Jónasdóttir, lögmaður Kjartans, sent frá sér yfirlýsingu þar sem segir: „Það kemur vissulega á óvart að íslenska ríkið skuli vísa bótaþætti málsins til yfirdeildar mannréttindadómstólsins með þessum hætti sérstaklega þar sem ólíklegt verði að telja að skilyrði mannréttindasáttmálans fyrir því að yfirdeild dómstólsins taki málið til meðferðar séu uppfyllt, en skilyrðin eru að málið veki alvarlega spurningu varðandi túlkun eða framkvæmd á sáttmálanum eða alvarleg deiluefni sem almennt er mikilvægt. Því ber hins vegar að fagna að í þessu felst vissulega viðurkenning íslenska ríkisins á því að brotið hafi verið með ólögmætum hætti gegn eignarrétti Kjartans.“
Fréttir Innlent Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira