Verð á mjólkurkvóta rýkur upp 12. janúar 2005 00:01
Verð á mjólkurkvóta er rokið upp úr öllu valdi og íhuga ýmsir bændur að bregða búi og selja kvótann, en aðrir neyðast til þess. Lítri af varanlegum mjólkurkvóta kostaði 210 krónur í janúar í fyrra en er nú kominn upp í 355 krónur og hefur lítrinn því hækkað um 145 krónur, sem er langt umfram allar hækkanir í landinu. Að mati fróðra manna í atvinnugreininni er nú endanlega brennt fyrir að ungt fólk geti hafið kúabúskap með viðeigandi kvótakaupum. Þá íhuga nú ýmsir rótgrónir kúabændur að grípa tækifærið, bregða búi og selja kvótann en ungir bændur, sem eru að byggja upp og hafa byggt sínar rekstraráætlanir á að lítrinn kosti 200 til 220 krónur, neyðast nú til að gefast upp. Þeir geta ekki lengur aukið við kvótann til að standa undir skuldbindingum. Þá telja menn engar líkur á að verð lækki á ný því bankar eiga víða óbeint veð í kvótum og mjólkurstöðvar vilja kaupa allt sem losnar á svæðum þeirra til að halda óbreyttri framleiðslu eða auka hana jafnvel. Þá eru eignarhaldsfélög einnig að hasla sér völl í mjólkurframleiðslunni með uppkaupum á jörðum og kvótum og geta grundvallað reksturinn öðruvísi en venjulegur bóndi. Heimildarmenn telja að mikið rót sé fram undan á þessu sviði á næstu vikum og mánuðum því nú sé líka farið að blasa við að bankar, sem veðja á einn skuldunaut fremur en annan, færi kvótann til þeirra vænlegustu til að tryggja hagsmuni sína, en bankarnir eiga stöðugt meiri hagsmuna að gæta í landbúnaði.
Fréttir Innlent Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira