Alþjóðlegur þrýstingur á Impregilo 12. janúar 2005 00:01
Fulltrúar ítölsku verkalýðsfélaganna og Alþjóða byggingasambandsins koma til Íslands í næstu viku til að styðja íslenska verkalýðshreyfingu og kynna sér aðstæður og aðbúnað starfsmanna á Kárahnjúkum. Alþjóðlega sendinefndin fer beint að Kárahnjúkum og sest svo á fund með fulltrúum íslensku verkalýðshreyfingarinnar á föstudag. Tilgangur fundarins er að fá "siðferðilegan stuðning, afla skilnings Ítalanna á því hvað er í gangi á Kárahnjúkum og hugsanlega reyna að ná alþjóðlegu samkomulagi við Impregilo því að Impregilo starfar ekki bara hér á landi. Þetta er alþjóðlegt fyrirtæki," segir Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðarsambandsins. Rafiðnaðarsambandið, Samiðn og Starfsgreinasambandið eru félagar í norrænu, evrópsku og alþjóðlegu byggingasamböndunum. Í þessum samböndum eru líka systurfélög þessara sambanda á Ítalíu. Guðmundur er í stjórn evrópska sambandsins og formaður Samiðnar er í stjórn norræna sambandsins og hafa þeir unnið að þessum fundi. "Í gegnum þessi sambönd hefur starfsfólk sambandanna í Sviss verið beðið um að ræða við ítölsku systurfélögin og kanna hvort hægt væri að komast í færi við Impregilo á heimavelli og ná samningi við það. Þá er verið að velta fyrir sér samstarfssamningi á alþjóðlegum grundvelli. Við erum með svoleiðis samninga, t.d. við Ikea og Skanska og ýmis stærri fyrirtæki sem eru með alþjóðlega starfsemi. Við viljum kanna hvort hægt sé að fá Impregilo til að ræða við okkur á þessum nótum." Guðmundur segir að talsmenn Impregilo hafi "látið líklega niðri á Ítalíu en við ætlum að fá fulltrúa verkalýðsfélaganna hingað til að sjá með eigin augum hvað við erum að tala um." Glíman við Impregilo hafi verið heilmikil, aðeins toppurinn á ísjakanum hafi birst í fjölmiðlum.
Fréttir Innlent Mest lesið Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ Innlent „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Innlent Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Innlent „Botninum hefur verið náð“ Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Innlent Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Innlent Fleiri fréttir Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum Sjá meira