Mega beita öllum brögðum 16. júlí 2005 00:01
Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, segir Ísraelsher mega beita öllum brögðum til að koma herskáum Palestínumönnum frá. Það sé nauðsynlegt ef friður eigi að nást. Að minnsta kosti fimm Palestínumenn létu lífið á Gaza og á Vesturbakkanum í gærkvöld í loftárásum ísraelska hersins á svæðið. Sharon tilkynnti í sjónvarpsviðtali að hann hefði skipað hernum að gera allar nauðsynlegar ráðstafanir gegn palestínskum hryðjuverkasamtökum og sagði hann í samtali við fjölmiðla að engar takmarkanir væru á skipununum til hersins. Mikilvægt væri að koma herskáum hryðjuverkamönnum Palestínumanna úr umferð, ef friður ætti að nást á svæðinu. Fjórir þeirra sem létust í árásum Ísraela í gærkvöld voru herskáir meðlimir úr Hamas-samtökunum. Fyrr um daginn féllu tveir óbreyttir borgarar og særðust 25 í átökum Hamas og palestínsku lögreglunnar á Gaza. Átökin brutust út er lögreglumennirnir leituðu manna sem stóðu á bak við flugskeytaárásir á byggðir Ísraela en ísraelsk kona lést í einni af árásunum. Palestínumenn létu þó ekki sitt eftir liggja og skutu nokkrum flugskeytum yfir landamæri Gasasvæðisins og Ísraels í nótt. Einungis er um mánuður þar til brottflutningur Ísraela frá Gasa á að hefjast. Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, mun heimsækja svæðið í næstu viku en báðir aðilar segjast vilja að átökum linni. Yfirmaður palestínsku öryggissveitanna hefur meðal annars sagt að sveitirnar muni ekki hika við að koma á lögum og reglu á sjálfstjórnarsvæðunum og að flugskeytaárásir herskárra samtaka Palestínumanna verði stöðvaðar.
Erlent Fréttir Mest lesið Segir leigubílstjórastéttina hafa verið „eyðilagða“ Innlent Veita útlendingum greiðari aðgang að heilbrigðiskerfinu en er skylt Innlent Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Innlent Talsverðar skemmdir eftir mikinn eld í Hafnarfirði Innlent Íslendingur lést vegna hitaslags Innlent Vatn flæddi upp úr klósettum og niðurföllum Innlent „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Innlent Þrjú hjólhýsi „splundruðust“ á Holtavörðuheiðinni Innlent Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Erlent Hátt í þrjú hundruð mótmæla útlendingastefnu stjórnvalda Innlent Fleiri fréttir Selenskí mun funda með Trump Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Forsetarnir tveir funda Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Sprengingar eftir eldingu Rússar helsta ógnin sem Norðmenn standi frammi fyrir Kýrskýrt að aðeins Selenskíj geti samið um landsvæði Blaðamenn drepnir í tugatali: Banvænt mynstur misræmis og mótsagna Sjá meira