Ófriðarský yfir Arnardal 6. júlí 2005 00:01
Átök brutust út á milli mótmælenda og lögreglu við upphaf G8-fundarins í Gleneagles í Skotlandi í gær. Flytja þurfti fólk á sjúkrahús og talsverð eignaspjöll voru unnin. Það fór á þann veg sem margir höfðu óttast, róstur og ringulreið settu mestan svip á upphaf leiðtogafundar sjö helstu iðnríkja heims og Rússlands sem hófst í gær í Gleneagles í Skotlandi. Strax í gærmorgun tók hópur uppivöðslusamra mótmælenda að láta ófriðlega í bænum í Stirling, rúma tuttugu kílómetra frá Gleneagles, en þar gista um 5.000 stjórnleysingjar og andstæðingar hnattvæðingar. Mölvuðu þeir rúður kyrrstæðra bíla og köstuðu grjóti að lögreglu. Leggja þurfti nokkra lögregluþjóna á sjúkrahús og voru 60 manns handteknir fyrir dólgslætin. Vegna óeirðanna í Stirling ákvað Tayside-lögreglan að banna mótmælagöngu frá bænum Auctherarder sem hún hafði áður veitt leyfi fyrir. Mikil reiði greip um sig hjá forsvarsmönnum göngunnar enda höfðu þeir lagt áherslu á að ganga þeirra yrði með friðsamlegu yfirbragði. "Síðan hvenær hefur Bretland verið lögregluríki?" spurði hinn umdeildi skoski þingmaður George Galloway. "Hvenær fékk lögreglan heimild til að aflýsa kröfugöngum í þessu frjálsa landi okkar?" Lögreglan ákvað skömmu síðar að heimila gönguna. Um fjögur þúsund manns tóku þátt í göngunni og í fyrstu fór allt vel fram. Fljótlega klofnaði hins vegar gangan, nokkur hundruð mótmælendur rifu niður girðingu við veginn og hlupu síðan að lögregluvarðturni sem stóð við öryggisgirðingu um Gleneagles-svæðið. Herþyrlur fluttu óeirðalögreglu fljótlega á vettvang og tókst henni að dreifa ófriðarseggjunum. Stærstur hluti göngumanna lét sér þó nægja að mótmæla á friðsamlegan hátt. Margir þeirra fórnuðu höndum og hrópuðu "hendur ykkar eru ataðar blóði". Væntanlega hafa þeir vísað þar til stríðsrekstarins í Írak og eymdarinnar í Afríku sem þeir telja að leiðtogar G8-ríkjanna beri ábyrgð á.
Erlent Fréttir Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Innlent Fleiri fréttir Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Sjá meira