Olíufélögin selja Gasfélagið

Gengið hefur verið frá sölu á öllu hlutafé Gasfélagsins ehf., sem er helsti innflytjandi á fljótandi gasi og gashylkjum til landsins. Seljendur eru Olíufélagið ehf., Olíuverzlun Íslands og Skeljungur. Gasfélagið ehf. var stofnað í núverandi mynd árið 1995. Kaupandi er Ísmyndir ehf., sem eru í eigu Jóns Þorsteins Jónssonar, stjórnarformanns Saxhóls ehf., og Arnar Arnarsonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra Gasfélagsins ehf. Rekstur Gasfélagsins ehf. hefur gengið vel en mikil aukning hefur verið í gasnotkun hér á landi. Þá verður lögð áhersla á að halda því fólki sem hefur starfað hjá félaginu á undanförnum árum.