Sport

Alfreð tekur við 2007

Alfreð gíslason Tekur við Gummersbach árið 2007.
Alfreð gíslason Tekur við Gummersbach árið 2007.

Velimir Kljaic hefur framlengt samning sinn við þýska úrvalsdeildarfélagið Gummersbach til ársins 2007 en hann hefur verið að standa sig vel með liðið í vetur. Með liðinu leika íslensku landsliðsmennirnir Guðjón Valur Sigurðsson og Róbert Gunnarsson.

Ákveðið hefur verið að Alfreð Gíslason taki við liðinu eftir þann tíma en Gummersbach lagði hart að honum að taka við eftir þetta tímabil. Hann er aftur á móti með samning við Magdeburg til ársins 2007 og félagið neitaði að sleppa honum fyrr. Þess vegna ákvað Gummersbach að framlengja við Kljaic.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×