Þjóðin rænd rétti sínum 13. júní 2004 00:01 Þjóðvaratkvæðagreiðslan - Björgvin G. Sigurðsson, alþingismaður. Undarleg umræða blossaði upp af hálfu forystumanna Sjálfstæðisflokksins í kjölfar þess að forsetinn skaut fjölmiðlalögunum til þjóðarinnar. Í fyrstu reyndi formaður flokksins að leyna gremju sinni en sú sæla stóð stutt yfir. Strax daginn eftir hófust þeir handa Geir Haarde og Björn Bjarnason um að grafa undan málskotsrétti forsetans og leggja drög að því að eyðileggja kosninguna með himinháum tölum um kjörsókn og gífuryrðum um að gengið væri gegn þingræðinu. Fram að þessu hefur Björn dómsmálaráðherrann lægst lagst í atlögu Sjálfstæðisflokksins að lýðræðislegum rétti þjóðarinnar til að kjósa beint og milliliðalaust um fjölmiðlalögin. Dómsmálaráðherrann fór undarlega fjallabaksleið að því að koma því inn í umræðuna að 75% kjörsókn yrði að liggja til grundvallar því að atkvæðagreiðslan yrði gild. Þar beitti hann blessuðum landbúnaðarráðherranum fyrir sig sem áður hafði miðlað þeim fróðleik til þjóðarinnar í viðtali að slík viðmið gætu verið heppileg. Það er morgunljóst að sé markið sett svo hátt þá er stuðningsmönnum stóru flokkanna í lófa lagið að ónýta slíka kosningu. Einfaldlega með því að sitja heima. Og þar með að ræna þjóðina rétti sínum til að kjósa beint um málið. Er það tilgangur Sjálfstæðisflokksins með framgöngu sinni? Mörður Árnason alþingismaður skrifar fróðlega grein í Morgunblaðið á dögunum þar sem hann gerir grein fyrir reglum sem gilda um þjóðaratkvæðagreiðslur í nágrannalöndunum. Í löndum þar sem ráðamenn ganga ekki af göflunum við það eitt að fólkið fái að ráða milliliðalaust, heldur eru það sjálfsagðir stjórnarhættir og til þess nýttir að bæta upp galla fulltrúalýðræðisins. Í grein Marðar kemur m.a. fram það álit hans að dönsku reglurnar falli best að íslenskum aðstæðum. En þar er talin þörf á tilteknum lágmarksfjölda kjósenda til að ganga gegn lögum frá þinginu en markið ekki sett við að fjöldi kjósenda ráði úrslitum nema í undantekningartilvikum. Loks segir Mörður: "Ef mönnum á annað borð finnst að hér þurfi að skilyrða útslit atkvæðagreiðslunnar tel ég samanburðinn við Danmörku mun raunhæfari og betri en flugvallarreglurnar. Meðal annars af því að það er vont fyrir lýðræðið að stuðningsmenn eins flokks á borð við Samfylkinguna eða Sjálfstæðiflokkinn geti í svona mikilvægri atkvæðagreiðslu ráðið úrslitum gegn meirihluta þjóðarinnar með því einu að sitja heima". Þetta eru orð að sönnu og ættu að liggja til grundvallar umræðu næstu daga um tilhögun atkvæðagreiðslunnar um fjölmiðlalögin. Fyrstu þjóðaratkvæðagreiðslunni í 60 ár og einkar vel við hæfi á afmæli lýðveldisins að þessi tímamót eigi sér stað nú. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Lægri húsnæðisvextir með evru (staðfest) Dagur B. Eggertsson Skoðun Hamfarir Hildar Haraldur F. Gíslason Skoðun Popúlismi formanns VR Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Dónaskapur Reykjavíkurborgar Lárus Blöndal Sigurðsson Skoðun Ég lofa að líta ekki undan Ingibjörg Magnúsdóttir Skoðun Íslensk orka er svarið við olíukrísunni Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Sjálflærðir sérfræðingar í leikskólamálum Ingibjörg Sólrún Ágústsdóttir Skoðun Ég ætlaði mér aldrei að verða leikskólakennari Ásta Möller Sívertsen Skoðun Ég kann að skipta um bleyju og ætti því að fá starfsleyfi sem leikskólakennari Rakel Linda Kristjánsdóttir Skoðun Ísland á krossgötum: Er kominn tími til að velja öryggi fram yfir óvissu? Sigurður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Mitt uppáhalds stefnumál? Systkinaforgangur Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ekki benda á mig Guðmundur Stefán Gunnarsson skrifar Skoðun Vönduð niðurstaða Feneyjanefndarinnar Pawel Bartoszek skrifar Skoðun Horfumst í augu við staðreyndir Eyþór Fannar Sveinsson skrifar Skoðun Hafa skal náttúruvernd í heiðri allar stundir! Elva Rakel Jónsdóttir,Guðmundur Þ. Guðmundsson,Rakel Garðardóttir,Rán Flygenring,Stefán Jón Hafstein skrifar Skoðun Vatnsaflsvirkjanir eru æði Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Innritun í framhaldsskóla – samspil fagmennsku og sanngirni Magnús Þór Jónsson skrifar Skoðun Hamfarir Hildar Haraldur F. Gíslason skrifar Skoðun Græna gangan - göngum fyrir hafið Guðrún Hallgrímsdóttir,Maríanna Traustadóttir skrifar Skoðun 10 loforð til ungs fólks á besta stað í heimi, Hafnarfirði Viktor Pétur Finnsson skrifar Skoðun Lýðheilsa er undirstaða sterks samfélags Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Sjálflærðir sérfræðingar í leikskólamálum Ingibjörg Sólrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun Ég lofa að líta ekki undan Ingibjörg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Nýr golfvöllur í Reykjavík Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar bygging er ekki orðin að húsi: Ný nálgun í tryggingum framkvæmda Heiður Huld Hreiðarsdóttir skrifar Skoðun Lýðfullveldi Aðalstein Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Árangur á vakt Framsóknar í Suðurnesjabæ Anton Guðmundsson skrifar Skoðun Hvar er forgangsröðun ríkisstjórnarinnar? Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Lægri húsnæðisvextir með evru (staðfest) Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Foreldrahús Kristín Davíðsdóttir skrifar Skoðun Börn án verndar: ofbeldi milli systkina sem fellur á milli kerfa Þórdís Bjarnleifsdóttir skrifar Skoðun Íslensk ofbeldismenning og réttarríkið Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Lykill að jöfnum tækifærum Isabel Alejandra Diaz skrifar Skoðun Jöfnuður, ábyrgð og uppbygging Stefán Þór Eysteinsson skrifar Skoðun „Selfies“ eru ekki hagsmunagæsla Jóhann Ingi Óskarsson skrifar Skoðun Dónaskapur Reykjavíkurborgar Lárus Blöndal Sigurðsson skrifar Skoðun Sterkari saman Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Popúlismi formanns VR Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Snúum Reykjavík við Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun #ÉGLOFA að láta ekki allt brenna til kaldra kola Alfa Jóhannsdóttir skrifar Sjá meira
Þjóðvaratkvæðagreiðslan - Björgvin G. Sigurðsson, alþingismaður. Undarleg umræða blossaði upp af hálfu forystumanna Sjálfstæðisflokksins í kjölfar þess að forsetinn skaut fjölmiðlalögunum til þjóðarinnar. Í fyrstu reyndi formaður flokksins að leyna gremju sinni en sú sæla stóð stutt yfir. Strax daginn eftir hófust þeir handa Geir Haarde og Björn Bjarnason um að grafa undan málskotsrétti forsetans og leggja drög að því að eyðileggja kosninguna með himinháum tölum um kjörsókn og gífuryrðum um að gengið væri gegn þingræðinu. Fram að þessu hefur Björn dómsmálaráðherrann lægst lagst í atlögu Sjálfstæðisflokksins að lýðræðislegum rétti þjóðarinnar til að kjósa beint og milliliðalaust um fjölmiðlalögin. Dómsmálaráðherrann fór undarlega fjallabaksleið að því að koma því inn í umræðuna að 75% kjörsókn yrði að liggja til grundvallar því að atkvæðagreiðslan yrði gild. Þar beitti hann blessuðum landbúnaðarráðherranum fyrir sig sem áður hafði miðlað þeim fróðleik til þjóðarinnar í viðtali að slík viðmið gætu verið heppileg. Það er morgunljóst að sé markið sett svo hátt þá er stuðningsmönnum stóru flokkanna í lófa lagið að ónýta slíka kosningu. Einfaldlega með því að sitja heima. Og þar með að ræna þjóðina rétti sínum til að kjósa beint um málið. Er það tilgangur Sjálfstæðisflokksins með framgöngu sinni? Mörður Árnason alþingismaður skrifar fróðlega grein í Morgunblaðið á dögunum þar sem hann gerir grein fyrir reglum sem gilda um þjóðaratkvæðagreiðslur í nágrannalöndunum. Í löndum þar sem ráðamenn ganga ekki af göflunum við það eitt að fólkið fái að ráða milliliðalaust, heldur eru það sjálfsagðir stjórnarhættir og til þess nýttir að bæta upp galla fulltrúalýðræðisins. Í grein Marðar kemur m.a. fram það álit hans að dönsku reglurnar falli best að íslenskum aðstæðum. En þar er talin þörf á tilteknum lágmarksfjölda kjósenda til að ganga gegn lögum frá þinginu en markið ekki sett við að fjöldi kjósenda ráði úrslitum nema í undantekningartilvikum. Loks segir Mörður: "Ef mönnum á annað borð finnst að hér þurfi að skilyrða útslit atkvæðagreiðslunnar tel ég samanburðinn við Danmörku mun raunhæfari og betri en flugvallarreglurnar. Meðal annars af því að það er vont fyrir lýðræðið að stuðningsmenn eins flokks á borð við Samfylkinguna eða Sjálfstæðiflokkinn geti í svona mikilvægri atkvæðagreiðslu ráðið úrslitum gegn meirihluta þjóðarinnar með því einu að sitja heima". Þetta eru orð að sönnu og ættu að liggja til grundvallar umræðu næstu daga um tilhögun atkvæðagreiðslunnar um fjölmiðlalögin. Fyrstu þjóðaratkvæðagreiðslunni í 60 ár og einkar vel við hæfi á afmæli lýðveldisins að þessi tímamót eigi sér stað nú.
Ég kann að skipta um bleyju og ætti því að fá starfsleyfi sem leikskólakennari Rakel Linda Kristjánsdóttir Skoðun
Ísland á krossgötum: Er kominn tími til að velja öryggi fram yfir óvissu? Sigurður Sigurðsson Skoðun
Skoðun Hafa skal náttúruvernd í heiðri allar stundir! Elva Rakel Jónsdóttir,Guðmundur Þ. Guðmundsson,Rakel Garðardóttir,Rán Flygenring,Stefán Jón Hafstein skrifar
Skoðun Þegar bygging er ekki orðin að húsi: Ný nálgun í tryggingum framkvæmda Heiður Huld Hreiðarsdóttir skrifar
Skoðun Börn án verndar: ofbeldi milli systkina sem fellur á milli kerfa Þórdís Bjarnleifsdóttir skrifar
Ég kann að skipta um bleyju og ætti því að fá starfsleyfi sem leikskólakennari Rakel Linda Kristjánsdóttir Skoðun
Ísland á krossgötum: Er kominn tími til að velja öryggi fram yfir óvissu? Sigurður Sigurðsson Skoðun