Íslenska sveitin 1. júlí 2004 00:01
Friðrik Guðmundsson, kvikmyndagerðarmaður er nýkominn heim frá Kabúl í Afghanistan þar sem hann var að vinna að heimildarmynd um íslensku friðargæsluna sem nú hefur umsjón yfir stjórn flugvallarins í Kabúl, undir stjórn Haraldar Sigurðssonar, aðstoðarframkvæmdastjóra hjá Flugmálastjórn. Myndin, sem framleidd er af Tindru, hefur hann nefnt Íslenska sveitin. Þegar hann var úti fékk hann að fylgja sautján íslenskum friðargæsluliðum eftir í sextán tíma á dag í þrjár vikur, auk þess sem hann bjó með þeim í eina viku. "Ég fór með þeim á skotæfingu og það fannst þeim rosalega gaman, var með þeim í eftirliti og fékk bara að fylgjast með því hvað þeir eru að gera þarna, hvað þeir eru að hugsa svona langt í burtu. Stákarnir hleyptu mér í dagbækur sínar og skrifuðu niður hugleiðingar sínar fyrir mig og því er kjarninn í myndinni um strákana." Eitt atriði myndarinnar sýnir fyrsta skiptið sem hópurinn fór út fyrir flugvallarsvæðið og inn í borg, þar sem þeim hafði verið boðið í súpu hjá Norðmönnum, hinum megin í borginni. "Þeir þurftu náttúrlega að vera gráir fyrir járnum því enginn fer útaf kampi nema með almennileg vopn, hjálma og skotheld vesti. Þegar komið var inn í borgina blasti mannlífið við, niðurnídd húsin og eymd hvert sem litið var. Allt í einu var stór trukkur stopp fyrir framan bílinn. Það þyngdist enn andrúmsloftið þegar annar trukkur, risastór var kominn fyrir aftan okkur og við vorum innikróaðir. Það sagði enginn neitt en þögnin sagði allt því að yfirleitt var létt yfir strákunum og margt masað. Allt í einu dró um átta ára strákur sig út úr hópnum og steig í fæturna til hliðar við bílinn. Hann lyfti hendinni og bjó til byssu úr henni og beindi "hlaupinu", vísifingrinum að Guðjóni og hleypti af. Þessi mynd festist í hugum manna og þó að við kæmumst heilu og höldnu í norska kampinn hafði töluvert saxast á góða skapið. Þessi strákur hafði einhvernveginn sýnt hvaða hug margir hafa til friðargæsluliðanna og þeirrar hættu sem getur beðið þeirra." Þrátt fyrir að Friðrik sé kominn heim aftur er tökum ekki lokið, því hann skildi tökuvél eftir við hátíðleg loforð íslensku friðargæsluliðanna um að þeir myndu halda tökum áfram. "Ég stefni svo að því að hafa hana tilbúna í október og frumsýna hana þegar kosningarnar verða í Afghanistan, það er að segja ef það verður nægjanlega mikill friður til að halda þær." svanborg@frettabladid.is
Menning Mest lesið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Lífið Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Lífið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum Lífið Allir og amma þeirra í bókaklúbb Lífið Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Lífið Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Lífið Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Lífið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Fleiri fréttir Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Sjá meira