Myndir frá Madrídar-árásinni 19. október 2004 00:01
Árásirnar í Madríd á Spáni eru dæmi um ógnina sem stafar af íslömskum öfgamönnum í Evrópu. Í dag voru birtar myndir úr öryggismyndavélum sem sýna eina sprengjuna springa. Hópur íslamskra hryðjuverkamanna var einnig handsamaður. Spánverjar voru minntir með óþægilegum hætti á hryðjuverkaárásirnar í mars síðastliðnum sem og hættuna á frekari hryðjuverkum í dag. Átta meintir íslamskir öfgamenn voru handteknir í gær og í dag sakaðir um að skipuleggja hryðjuverkaárás á Hæstarétt Spánar. Hæstiréttur er einmitt miðstöð rannsóknardómarans Baltasars Garzon en það voru rannsóknir á hans vegum sem leiddu til þess að mennirnir voru handteknir. Þeir munu ekki hafa verið komnir langt á veg með skipulagningu árásarinnar og höfðu til að mynda ekki orðið sér út um sprengiefni eða annað í þeim dúr. Dagblaðið El Mundo greindi þó frá því að mennirnir hefðu ætlað sér að aka vöruflutningabíl með hálfu tonni af sprengiefni um borð upp að Hæstarétti og sprengja farminn þar í loft upp. Spænska sjónvarpsstöðin Telecinco sýndi í dag myndir úr öryggismyndavél á Atocha-brautarstöðinni í Madríd sem einnig eru til þess fallnar að ýfa upp gömul sár. Þar má sjá hvernig sprengja, sem hryðjuverkamenn höfðu komið fyrir, sprakk í mannfjöldanum. Reykur legst yfir svæðið og sjá má hvernig höggbylgja sviptir fótunum undan fólki á brautarpallinum. Hundrað níutíu og einn týndi lífi í hryðjuverkaárásinum þann 11. mars síðastliðinn en íslamskir öfgamenn, sem sagðir voru tengjast al-Kaída, stóðu fyrir árásunum.
Erlent Fréttir Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Fleiri fréttir Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Sjá meira