Kerfi neðansjávargljúfra finnast 25. nóvember 2004 00:01
Kerfi stórfelldra neðansjávargljúfra hefur uppgötvast suður af Mýrdalsjökli. Talið er að eðjustraumar frá Kötluhlaupum og öðrum jökulhlaupum hafi myndað þau en ummerki slíkra eðjustrauma sjást allt að 250 kílómetra suður af landinu. Þetta er sú mynd sem landsmenn hafa haft undanfarna áratugi af landgrunninu suður af Íslandi. En nú er búið að rannsaka hafsbotninn þarna nánar og kortleggja svæðið eins og það væri uppi á landi. Fjölgeisladýptarmælingar Hafrannsóknarstofnunarinnar undanfarin ár gefa nú miklu nákvæmari mynd af hafsbotninum, og það sem meira er: Þær sýna kerfi neðansjávargljúfra. Einar Kjartansson jarðeðlisfræðingur segir landslagið þar fjölbreytilegt, stórbrotið og óþekkt áður nema að litlu leyti. Þarna eru fjöll, dalir, gljúfur og farvegir sem eru allt upp í kílómeters breiðir, líklega grafnir af eðjustraumum. Það er einmitt þetta sem vekur mesta athygli vísindamanna, að gljúfrin virðast vera farvegir eðjustrauma. Þeir telja nú að það sem hafi grafið þessi neðansjávargljúfur séu jökulhlaup, eða öllu heldur sá mikli aur sem fylgi slíkum hlaupum. Setið í slíkum hlaupum getur orðið svo mikið að það er þyngra heldur en sjórinn að sögn Einars og því myndist þetta stórbrotna landslag. Gljúfrin eru beint framhald af Markarfljóti, Jökulsá á Sólheimasandi, Múlakvísl og Kúðafljóti. Í allar þessar ár hafa komið hamfarahlaup vegna eldgosa undir jökli en einnig hlaup sem skapast reglubundið vegna jarðhita undir jökli. Og vísindamenn telja að fleira forvitnilegt leynist umhverfis Ísland því aðeins hafi verið kannað lítið brot af íslenskri landhelgi með mælinum.
Fréttir Innlent Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Fleiri fréttir Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Sjá meira