Clinton næsti framkvæmdastjóri Sþ? 22. október 2004 00:01
Verður Bill Clinton framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna þegar Kofi Annan lætur af embættinu árið 2006? Clinton er sagður áhugasamur en George Bush gæti reynst honum þrándur í götu. Þó að það hafi ekki farið hátt hafa lengi verið á kreiki sögusagnir þess efnis að Bill Clinton hefði áhuga á starfi framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. Og nú hefur fréttastofan UPI eftir heimildarmönnum að Clinton sé í raun og veru spenntur fyrir embættinu. Talið er víst að hann hlyti yfirgnæfandi stuðning, væri hann í framboði, bæði frá Evrópu og ríkjum þriðja heimsins. Óstaðfestar fregnir herma að Þjóðverjar, Frakkar, Bretar, Írar, Nýsjálendingar, Marokkó og Egyptaland hafi þegar lýst yfir stuðningi við hugmyndir um framboð Clintons. Hermt er að Rússar hafi ekkert á móti Clinton og að Kínverjar séu beinlínis spenntir fyrir honum. Tæki hann við embættinu þykir það jafnframt til þess fallið að vekja mun meiri athygli á starfi samtakanna um víða veröld. Fram til þessa hafa framkvæmdastjórar Sameinuðu þjóðanna komið frá smærri þjóðum og ekki stórveldum - enginn Bandaríkjamaður hefur til að mynda gengt embættinu. En Clinton gæti náð eyrum almennings í því ríki sem mest völd hefur innan Sameinuðu þjóðanna - þ.e.a.s. í Bandaríkjunum. Eina vandamálið er að bandarísk stjórnvöld yrðu að tilnefna Clinton og verði George Bush endurkjörinn 2. nóvember þykir fremur ólíklegt að hann sjái sér hag í því.
Erlent Fréttir Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Minnst þrjátíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Fleiri fréttir Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst þrjátíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Sjá meira