Brunaeftirlitið vildi dekkin burt 13. október 2005 15:02
Eldvarnareftirlitið var búið að koma auga á þá hættu sem almenningi gæti stafað að dekkjahaug sem brann á starfssvæði Hringrásar í fyrrinótt. Það skrifaði þess vegna eigendum Hringrásar harðort bréf í júní þar sem bent var á hættuna og krafist greinargerðar um hvað fyrirtækið hygðist gera til úrbóta. Í bréfinu sagði meðal annars: "Við skoðun forvarnardeildar á hafnarsvæðinu kom í ljós að haugar af endurvinnanlegum efnum á landi Hringrásar eru það stórir að um almannahættu gæti orðið að ræða ef kviknar í þeim, búast má við að rýma þurfi nokkuð stór svæði af þessum sökum. Einnig er hætt við að reykur frá eldi í haugunum geti valdið verulegu umhverfis- og eignatjóni." Bréfinu var ekki svarað fyrr en í lok september þrátt fyrir að forvarnardeild slökkviliðsins hafi krafist svara eigi síðar en 14. júní. Í bréfinu sagði Einar Guttormsson, fjármálastjóri Hringrásar að stefnt væri að því að flytja dekkin út á næstu þremur til fjórum mánuðum þar á eftir, en strax í byrjun nóvember áttu birgðirnar að hafa minnkað umtalsvert. Hrólfur Jónsson slökkviliðsstjóri segist ekki treysta sér til að segja hvort ganga hefði harðar eftir úrbótum af hálfu Hringrásar. Fyrirtækið hafi verið að leita leiða til að minnka dekkjahauginn. Það sé þó alveg ljóst að það þurfi að fara yfir þessi mál til að tryggja að fyrirtæki safni ekki upp brennanlegum efnum eins og þessum. Hrólfur segir að eldvarnareftirlitið hafi þrenns konar úrræði til fylgja eftir bréfum eins og þeir sendu Hringrás í júní. Þeir geti stöðvað starfsemi fyrirtækja, óskað eftir heimildum frá sveitarfélögum til að leggja á dagsektir eða til að framkvæma úrbætur á kostnað eigandans. Í þessu tilfelli hafi það hins vegar verið mat lögmanna slökkviliðsins að það væri á gráu svæði að beita þessum úrræðum. Aðspurður hver hefði þá átt að sjá um eftirlitið segist Hrólfur ekki tilbúinn til að svara því. Því hljóti að þurfa fara vandlega yfir þetta eftirlitskerfi til að skera úr um það.
Fréttir Innlent Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Fleiri fréttir Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Sjá meira