Meiri foringi en margur hyggur 3. nóvember 2004 00:01
Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir sigur George W. Bush í forsetakosningunum í Bandaríkjunum virðast mjög afgerandi. "Ég tel að þetta sé mikið afrek hjá honum og sýni að hann er meiri foringi en margur hyggur, sérstaklega í Evrópu. Hann hefur verið umdeildur, en mér hafa líkað vel þau samtöl sem ég hef átt við hann," segir Halldór. Halldór telur að endurkjör Bush í embætti Bandaríkjaforseta komi Íslandi að mörgu leyti vel, enda hafi hann til dæmis verið mjög afgerandi varðandi frjáls viðskipti í heiminum. "Svo hefur hann svarað því til að hann vilji finna lausn á varnarmálunum sem við getum sætt okkur við." Halldór segist þó aldrei hafa talið að miklu myndi breyta varðandi utanríkismál hvor ynni, Bush eða Kerry. "Þó þeir hafi verið ósammála í sambandi við margt í Írak er fram undan þar uppbygging og Bandaríkjamenn hafa tekist þar á hendur skuldbindingar sem þeir hvorki geta né munu hverfa frá." Þá gerir Halldór ráð fyrir að ný ríkisstjórn undir forystu Bush í Bandaríkjunum leggi mikla áherslu á að lausn verði fundin á vanda Mið-Austurlanda. "Það er lykillinn að mörgu öðru og takist það skiptir það sköpum í samskiptum Bandaríkjanna, bæði við Mið-Austurlönd og Evrópu."
Forsetakosningar í Bandaríkjunum Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Innlent Fleiri fréttir Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé Sjá meira