Jafntefli mögulegt? 15. október 2004 00:01
Ef jafn lítill munur verður á milli frambjóðenda til forsetakosninganna í Bandaríkjunum í kosningunum og skoðanakannanir sýna gætu sjónir manna beinst að Colorado fylki. Þar fara samhliða fram aðrar kosningar sem gætu breytt stöðunni til muna, og jafnvel leitt til þess að hvorugur þeirra Bush eða Kerry vinni kosningarnar. George Bush og John Kerry fá svipað fylgi í flestum skoðanakönnunum. Reyndar bendir allt til að Kerry og hans lið þurfi að spýta í lófana og taka á öllu sínu til að sigra sitjandi forseta annan nóvember því þær kannanir sem sýna einhvern mun sýna Bush með meira ívið meiri stuðning kjósenda. Þá er einungis verið að tala um fylgi þeirra sem greiða atkvæði og ekki verið að taka tillit til kosningakerfisins vestanhafs. Kjörmenn úr hverju fylki Bandaríkjanna kjósa forseta. Í langflestum ríkjum er það þannig að sá frambjóðenda sem fær flest atkvæði í fylkinu fær alla kjörmennina, þannig að í raun má segja að kosningarnar snúist um að sigra hvert fylki fyrir sig. Í Nebraska og Maine eru lög þannig að sigurvegari fylkisins fær atkvæði tveggja kjörmanna, en síðan skiptist atkvæði kjörmanna eftir sigurvegurum héraði. Í reynd hefur atkvæðunum hins vegar aldrei verið deilt. Í Colorado fylki munu kjósendur greiða atkvæði um breytingar á þessu kerfi samhliða forsetakosningunum. Breytingartillagan gengur út á það að frambjóðendur fái sama hlutfall kjörmanna og atkvæða. Stuðningsmenn tillögunnar segja það mun sanngjarnara kerfi, sem myndi betur lýsa afstöðu kjósenda. Hefði þessi tillaga verið samþykkt fyrir síðustu kosningar árið 2000 hefði Al Gore verið húsráðandi í Hvíta húsinu síðustu fjögur árin. Hefðu öll ríki hins vegar tekið upp þennan máta fyrir fjórum árum hefði hvorugur þeirra Bush eða Gore hlotið tilskilinn fjölda kjörmanna til að ná kosningu. Þá hefðu úrslit ráðist í fulltrúadeild Bandaríska þingsins.
Erlent Fréttir Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Fleiri fréttir Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Sjá meira