Líf Bretans hangir á bláþræði 23. september 2004 00:01
Líf bresks gísl í Írak hangir á bláþræði, en bresk stjórnvöld þvertaka fyrir að semja við hryðjuverkamenn. Gíslinn og fjölskylda hans grátbiðja um að lífi hans verði þyrmt. Breski gíslinn Kenneth Bigley er síðasti gíslinn af þremur í haldi sömu mannræningja, en hinir tveir hafa þegar verið drepnir. Þeir hóta að skera Bigley á háls fljótlega verði ekki orðið við kröfum þeirra. Bigley grátbiður Tony Blair um að þyrma lífi sínu á myndbandsupptöku sem birt var á íslamskri netsíðu í nótt. Hann endurtók í sífellu að hann vildi ekki deyja í Írak. Í morgun ávarpaði eiginkona Bigleys mannræningjana í sjónvarpi og bað þá um að hlífa eiginmanni sínum, hann væri góður maður sem hefði haldið til Íraks til að reyna að láta gott af sér leiða. Í morgun lýstu bresk yfirvöld því yfir, að þau semdu ekki við hryðjuverkamenn og mannræningja. Íröksk stjórnvöld tóku jafnframt af allan vafa um að hvorugum kvenfanganum, sem haldið er í Írak, yrði sleppt. Í gær komust á kreik sögusagnir um að annarri konunni yrði sleppt. Paul Bigley, bróðir gíslins, sakaði í kjölfar Bandaríkjastjórn um að hafa spillt fyrir því, að bróðir hans hlyti frelsi. Greinilegt væri að írakska ríkisstjórnin væri leppur Bandaríkjamanna sem gerði eins og þeir segðu. Tæknilega séð eru kvenfangarnir fangar bandaríska herliðsins í Írak. Mannræningjar, sem héldu tveimur ítölskum konum í gíslingu sinni, segjast nú hafa drepið þær, þar sem ítölsk stjórnvöld hafi ekki orðið við kröfum um að kalla hersveitir sínar heim frá Írak. Ítalar segja ekki rétt að taka mark á yfirlýsingum þessa efnis á vefsíðum, þar sem engar beinar sannanir hafi fengist.
Erlent Fréttir Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Innlent Fleiri fréttir Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Sjá meira