Of háar verðhugmyndir 15. september 2004 00:01
Sérfræðingar á markaði telja að hugmyndir um að söluverðmæti Símans sé á bilinu fimmtíu til sjötíu milljarðar króna séu umfram það sem eðlilegt geti talist. Þeir sem Fréttablaðið hefur rætt við telja að eðlilegt verð fyrir félagið sé á bilinu 35 til 55 milljarðar króna en telja ólíklegt að skynsamlegt sé að kaupa félagið á meira en fimmtíu. 40 milljarðar nær lagi Í Morgunkorni greiningardeildar Íslandsbanka á þriðjudag var einnig fjallað um hugsanleg verðmæti Símans. Notast var við ýmsar kennitölur úr rekstrinum og þær mátaðar saman við verðhugmyndirnar sem forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar hafa látið í ljós. Fram kemur að miðað við rekstrartölur Símans séu verðhugmyndirnar háar. Að sögn Atla B. Guðmundssonar er gjarnan miðað við að hlutfall heildarverðmætis og framlegðar í fjarskiptafyrirtækjum sé í kringum sex. Að þeirri forsendu gefinni ætti verð Símans að vera um fjörutíu milljarðar króna. Önnur þekkt leið til að meta verðmæti er svokallað V/H hlutfall. Með því er reiknað út hversu lengan tíma það tekur fyrir fjárfesti að fá fjárfestingu í fyrirtækinu endurgreidda ef allur hagnaður er greiddur til hluthafa. Viðmiðanir um þetta hlutfall eru misjafnar eftir eðli rekstrar og framtíðarmöguleikum fyrirtækja. Þannig er þetta hlutfall gjarnan mjög hátt hjá fyrirækjum sem álitin eru eiga mikla vaxtarmöguleika en lág hjá félögum sem eru í stöðugum rekstri. Í lok ágúst bar KB banki verðið á Símanum saman við nokkur erlend fjarskiptafyrirtæki. KB banki sagði þá að miðað við helstu kennitölur þá ætti verðið á Símanum að vera í kringum fjörutíu milljarðar króna. Takmarkaðir vaxtamöguleikar innanlands Þó að kennitölur renni ekki stoðum undir verðhugmyndir stjórnvalda þá þarf að taka með í reikninginn að Síminn hefur á undanförnum árum greitt tiltölulega háan arð í ríkissjóð. Rekstrarafgangur hefur því ekki farið í uppbyggingu félagsins nema að takmörkuðu leyti. Því kann að vera möguleiki á því að Síminn vaxi nokkuð hraðar en verið hefur. Vaxtarmöguleikar Símans gætu þó verið til staðar ef kaupendur hafa í hyggju að taka þátt í alþjóðlegum verkefnum. Síminn á nú þegar hlut í búlgarska símafyrirtækinu BTC ásamt Björgólfi Thor Björgólfssyni og öðrum fjárfestum. Í samtali við Fréttablaðið í kjölfar fjárfestingarinnar sagði Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Símans, að íslenski markaðurinn byði ekki upp á mikinn vöxt og því væri litið út fyrir landsteina að tækifærum. Það má þó gera ráð fyrir að farið verði af mikilli varkárni í slíka útrás á meðan fyrirtækið er enn í eigu ríkisins. Í höndum manna sem telja að Síminn geti gegnt hlutverki í alþjóðlegri útrás í fjarskiptamálum er líklegt að fyrirtækið geti verið mikils virði - meira virði en kennitölur úr rekstrinum segja til um. Ef slík tækifæri eiga að endurspeglast í verði á félaginu þarf ríkisstjórnin hins vegar að halda rétt á spilunum og tryggja að allir mögulegir kaupendur standi jafnfætis. Aðferð við einkavæðingu mikilvæg Greiningardeildirnar hafa ekki lagt út í að verðmeta Símann þótt þær munu allar takast á hendur það verkefni þegar hjólin fara að snúast og ákvörðun ríkisstjórnarinnar um tímasetningar og aðferð liggur fyrir. Greiningardeildirnar eru sammála um að ákvarðanir einkavæðingarnefndar og ríkisstjórnar geti haft mjög mikil áhrif á það verð sem kaupendur verða tilbúnir til að greiða. Því minni kvaðir sem hvíla á fyrirtækinu þeim mun verðmætari er Síminn. Sérfræðingar telja til að mynda einsýnt að pólitísk ákvörðun um að Síminn þurfi að sjá öllum landsmönnum fyrir aðgangi að ADSL háhraðatengingu komi til með að draga úr verðmæti fyrirtækisins. Þá er líklegt að ef stjórnvöld hafa einhverjar séróskir um hverjir skuli kaupa og sníði söluna að því þá muni verðmætið lækka töluvert. Eins er talið fullvíst að fjárfestar haldi að sér höndum nema einkavæðingarferlið verði mjög skýrt afmarkað allt frá upphafi. Engan langar til þess að verja tugum milljarða í fjárfestingu sem síðan lúti duttlungum sjtórnmálamanna. Sú leið að selja Símann í litlum skömmtum skapar óvissu í rekstrinum sem dragi úr verðmæti félagsins. Aðilar sem fylgjast grannt með markaðinum leggja mikla áherslu á að algjört forræði yfir stefnu félagsins sé lykilforsenda þess að kjölfestufjárfestar sjái sér hag í að kaupa félagið á verði sem nálgast það sem ríkisstjórnin virðist hafa hugmyndir um.
Mest lesið Taki stöðuna alvarlega og hækki ekki verð umfram verðbólgumarkmið Neytendur Vinkonur á tímamótum eftir tíu ár í verslunarrekstri Viðskipti innlent Hafi ekki aðhafst nóg vegna bílastæðagjalda Viðskipti innlent Tímamót hjá Heklu: Kveðja Laugaveginn eftir rúma sex áratugi Neytendur „Fyrir okkur eru flugferðir ekki lúxus heldur lífæð“ Viðskipti innlent Wolt á blússandi siglingu á meðan sendlar lýsa skertum kjörum Viðskipti innlent Miði keyptur í Fjarðakaupum skilaði 129 milljónum króna Neytendur Framkvæmdastjóri kveður Nóa Siríus Viðskipti innlent „Þau bentu mér á að ég gólaði ansi oft með“ Atvinnulíf Tekjur Íslendinga: Skattadrottning seinasta árs er stærðfræðikennari Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hafi ekki aðhafst nóg vegna bílastæðagjalda Vinkonur á tímamótum eftir tíu ár í verslunarrekstri „Fyrir okkur eru flugferðir ekki lúxus heldur lífæð“ Wolt á blússandi siglingu á meðan sendlar lýsa skertum kjörum Framkvæmdastjóri kveður Nóa Siríus Ungir fatasalar möluðu gull Tengir stórframkvæmdir við framtíð lýðræðisins Endurtakk-bræður opna verslun í Hlemmur.haus Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Starfsleyfi Samherja til fiskþurrkunar að Laugum fellt úr gildi Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Einar Þór nýr framkvæmdastjóri Reykjafells Spá aukinni verðbólgu: Eldsneyti hækkar um 17 prósent Treble tryggir tvo milljarða í fjármögnun Ekki nægilegt traust á fasteignamarkaði Fasteignamarkaðurinn kólnar enn Wolt sendlar lögðu niður störf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Frá Wise til VÍS Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Tveir nýir sérfræðingar til Jónsbókar Tæplega 50 milljarða halli hins opinbera á öðrum fjórðungi Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Telur yfir milljarð á dag í húfi Sjá meira