Ávirðingar ganga á víxl 20. ágúst 2004 00:01
Ávirðingar ganga á víxl á milli forsetaframbjóðendanna Kerrys og Bush í Bandaríkjunum. Kerry svarar nú fullum hálsi auglýsingum þar sem hann er sagður ljúga til um eigin hetjudáðir í Víetnamstríðinu, og segir Bush standa fyrir óhróðursherferð. Hópur fyrrverandi hermanna í Víetnam hefur undanfarið birt í sjónvarpi auglýsingar þar sem hetjudáðir Johns Kerrys, forsetaframbjóðanda, í Víetnam eru dregnar í efa. Auglýsingarnar þykja bæði rætnar og rangar, þar sem Kerry er stríðshetja sem hlotið hefur heiðursmerki hersins. Fjöldamargir Repúblíkanar hafa gagnrýnt auglýsinguna og sagt hana ósmekklega, en Bush forseti og menn hans hafa ekki gengið svo langt. Í gærkvöldi þótti Kerry tímabært að svara fyrir sig. Hann sagði auglýsingarnar kostaðar úr feitum sjóði repúblikana í Texas en sá peningur sé notaður til að styðja kosningabaráttu Bush. Kerry segir þá staðreynd að forsetinn hafi ekki fordæmt auglýsingarnar, segja allt sem segja þurfi, Bush vilji að þeir vinni skítverkin fyrir sig. Svör talsmanns Hvíta hússins voru í loðnara lagi. Þeir sögðu þó að forsetinn hefði þegar fordæmt auglýsingarnar og að Kerry vissi það vel. Þá mæltust þeir til að Kerry gangi til liðs við þá til að binda enda á öll óskráð nafnlaus framlög sem séu í gangi í þessari kosningabaráttu. Kerry kveðst óhræddur að ræða frammistöðu í hernum við Bush, sem hefur verið gagnrýndur fyrir að koma sér hjá herþjónustu með því að ganga í þjóðvarðliðið og jafnvel að beita áhrifum pabba síns til að sleppa við herþjónustu í Víetnam.
Erlent Fréttir Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Fleiri fréttir Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Sjá meira