Erlent

Sprengja við tyrkneskan flugvöll

Einn maður lést og annar særðist illa þegar sprengja, sem þeir voru að koma fyrir utan við eftirlitsstöð við flugvöll í Tyrklandi í gærkvöldi, sprakk. Sá sem slasaðist faldi sig í átta klukkutíma áður en hann gaf sig fram. Flugvöllurinn er í suðausturhluta landsins, þar sem búa aðallega Kúrdar. Yfirvöld í bænum gruna að aðskilnaðarsamtök Kúrda hafi staðið að baki árásinni en enginn hefur lýst verkinu á hendur sér. CNN í Tyrklandi hefur það eftir fylkisstjóra á svæðinu að hugsanlega hafi sér verið ætluð sprengjan, þar sem hann hafi átt leið um svæðið nokkrum klukkutímum síðar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×