Erlent

Sprengingar í Indónesíu

Sprengjur heyrðust springa í morgun við kosningamiðstöð í Jakarta, höfuðborg Indónesíu, rétt áður en tilkynna átti úrslit forsetakosninga sem hafa farið fram í landinu. Vitni segist hafa séð fólk hlaupa út úr byggingunni. Starfsmaður kosningamiðstöðvarinnar segir sprengjuna hafa sprungið nærri salernum á jarðhæð fjögurra hæða byggingarinnar. Lögregla er mætt á vettvang og er að flytja fólk úr byggingunni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×