Kúrekar norðursins komnir á bak 19. júlí 2004 00:01
Kúrekar norðursins gerðu garðinn frægan fyrir margt löngu og merki þeirra reis sem hæst í samnefndri kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar. Lítið hefur farið fyrir köppunum í tvo áratugi en nú eru þeir snúnir aftur og hafa engu gleymt. Þeir eru að vísu aðeins tveir eftir, Johnny King og Siggi Helgi, en þeir láta það ekki á sig fá. "Við félagarnir komum saman fyrir um það bil mánuði síðan og ákváðum þá að endurvekja Kúreka norðursins," segir Johnny. "Við vildum auðvitað helst hafa þann gamla með okkur. Hinn eina sanna kúreka norðursins, Hallbjörn Hjartarson, en hann er störfum hlaðinn og heilsan ekki góð. Hann er eiginlega búinn eins og hann segir sjálfur. En við ákváðum að fylgja þessu eftir og flytjum erlenda tónlist, okkar eigin tónlist og svo auðvitað lögin hans Hallbjarnar." Kúrekar norðursins tróðu jafnan upp á Kántrýhátíðinni á Skagaströnd og gerðu stormandi lukku. "Það eru nú eitthvað um 20 ár síðan við þögnuðum," segir Siggi. "Ætli það hafi ekki verið troðið upp í okkur í kringum 1985. Við laumuðumst samt á Kántrýhátíð sem gestir fyrir tveimur árum. Vorum eins og allir hinir jólasveinarnir og það var ótrúleg upplifun að sjá hversu miklar afleiðingar þetta starf okkar hefur haft. Þegar við vorum að byrja nennti enginn að pæla í þessu og við fengum hvergi annað en neikvæð viðbrögð. Fólk skildi ekki kántrýið og hataði það en nú eru ótrúlegustu menn að flytja þetta." Félagarnir spiluðu á Rauða ljóninu um helgina og segja að stemningin hafi verið góð og fólk hafi gagngert komið uppáklætt til að dansa línudans. "Það hefur komið okkur rosalega á óvart hversu góðar viðtökur við erum að fá. Við erum bókaðir meira og minna í allt suma og sjáum ekki fram á mikið frí."
Menning Mest lesið Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið Digger grefur sína eigin gröf Gagnrýni Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Lífið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Alaska og Flóni hætt saman Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Lífið Fleiri fréttir Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Sjá meira