Stórfelldir gallar á upplýsingum 14. júlí 2004 00:01
Stórfelldir gallar voru á upplýsingum bresku leyniþjónustunnar um gereyðingavopaneign Íraka og stjórnvöld tóku upplýsingar alvarlegar en tilefni var til. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Butlers lávarðar sem byrjað var að kynna fyrir hálftíma síðan. Butler hóf að kynna skýrslu sína klukkan hálf tólf í dag, um hvort innrás Breta í Írak hafi verið byggð á vafasömum upplýsingum. Skýrslan hefur tekið tæplega hálft ár í vinnslu, þar var rannsakað hvernig breska leyniþjónustan safnaði saman og vann upplýsingar um gereyðingavopnaeign Íraka, og svo hvernig þessar upplýsingar voru notaðar af stjórnvöldum til að réttlæta innrásina í Írak. Meðal þess sem kom til skoðunar var sú staðhæfing breskra stjórnvalda að Írakar gætu beitt gjöreyðingarvopnum með 45 mínútna fyrirvara. Þetta segir Butler vera mjög langt seilst, miðað við fyrirliggjandi upplýsingar, og stjórnvöld hefðu ekki átt að halda þessu fram. Alvarlegir gallar hafi verið í upplýsingum frá leyniþjónustunni, og lýsir hann furðu sinni á því að upplýsingarnar hafi ekki verið yfirfarnar aftur og endurmetnar. Það alvarlega í málinu, sagði Butler, sé að stjórnvöldum hafi ekki verið gerð grein fyrir ákveðnum fyrirvörum við þessar upplýsingar, og þess vegna hafi stjórnvöld talið þær mikilvægari en efni stóðu til. Í skýrslunni eru lagðar til leiðir til að koma í veg fyrir þetta í framtíðinni. Þá fundust engin tengsl milli Saddams Husseins og Al Qaeda. Hinsvegar segir Butler að Blair sé ekki um að kenna né nokkrum öðrum, og enginn ætti að segja af sér - það séu engar sannanir fyrir því að stjórnin, eða nokkur annar, hafi "ætlað sér" að ýkja eða afbaka þær upplýsingar sem lágu fyrir til að nota sem réttlætingu fyrir innrásinni. Skýrsla Butlers mun án alls vafa koma sér mjög illa fyrir Blair sem mun ávarpa þingið klukkan hálf eitt. Hann sagðist í gær enn sannfærður um réttmæti innrásarinnar í Írak.
Erlent Fréttir Mest lesið „Fólk er bara slegið“ Innlent „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Innlent Blása á gagnrýni og opna dagatalið Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Innlent Fleiri fréttir Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Sjá meira