Halli ofursti tekur við völdum 29. júní 2004 00:01 Utanríkismál - Erling Ólafsson sagnfræðingur Ýmislegt kynlegt ber á fjörur Internetsins um þessar mundir. Upplýsingaþjóðfélagið opnar ýmsar gáttir sem áður voru lokaðar heima á Íslandi. Við getum fylgst með heimsviðburðum í beinni línu. Við getum kíkt yfir öxlina á valdhöfum okkar. Við höfum tækifæri að skoða felustaði þeirra. Fréttabréfið Washfile er gefið út af usinfo.state.gov (sem ég geri ráð fyrir að hérlendis hafi einu sinni var kölluð Upplýsingaþjónusta Bandaríkjanna). Þar eru fréttir frá Hvíta húsinu, t.d. frá 15. apríl: "Bin Laden, Palestínumenn, SÞ / Írak, Ísland". Við erum þarna í góðum félagsskap, ekki amalegt. "Bush fagnar stuðningi leiðtoga Íslands í styrjöld gegn hryðjuverkum [...] Forsetinn þakkaði forsætisráðherra Íslands Davíð Oddssyni fyrir sterkan stuðning í Írak og fyrir sterkan stuðning í styrjöldinni gegn hryðjuverkum," sagði blaðafulltrúinn um símtal forsetans 15. apríl við forsætisráðherrann sem var staddur hjá Sameinuðu þjóðunum í New York. "Báðir leiðtogarnir lýstu yfir vilja sínum og skuldbindingu að styðja írösku þjóðina í baráttu hennar að komast frá harðstjórn til frelsis." Þessi fréttatilkynning er svo sem ekki splunkuný af nálinni. En það er gott að hafa hana í huga þegar við veltum fyrir okkur ábyrgð okkar Íslendinga og stöðu í samfélagi þjóðanna árið 2004. Nýlegra fréttabréf, dagsett 3. júní, færir okkur fréttir sem við höfum svo sem fengið að heyra um hér heima á Fróni. "Liðssveitir undir forystu Nató taka við hernaðarsvæði Kabúl-flugvallar. ISAF tók við stjórn 1. júní; tyrkneskar þyrlur bætast við liðsaflann [...] Með þessu lýkur yfirtöku hernaðarhluta flugvallarins frá þýska flughernum til ISAF stjórnað af NATO. Ísland er forystuþjóðin sem útvegar starfslið og tæki fyrir stjórn flugvallarins [...] Aðstoðaryfirstjórnandi ISAF Wolfgang Korte undirhershöfðingi yfirfærði stjórn alþjóðaflugvallarins í Kabúl frá Kuhn ofursta frá Þýskalandi til Halli Sigurdson, ofursta frá Íslandi..." Að sjálfsögðu voru íslenski utanríkisráðherrann, Halldór Ásgrímsson og þýski aðstoðarvarnarmálaráðherrann Klaus-Guenther Biederbick viðstaddir. Í sömu frétt er einnig sagt frá auknum styrk frá Tyrklandi. 3 Blackhawk þyrlur ásamt 56 manns. En þátttakan í Afganistan er fyrsta verkefni Tyrkja utan síns heimalands. Svo mörg voru þessi orð. En því er ég að eyða bleki á þessar fréttir? Hvað er það sem þykir tíðindum sæta? Er ekki búið að fjalla um þetta í blöðunum? Er þetta ekki draumur okkar ráðamanna með dómsmálaráðherra í fararbroddi að verða fullgildur þátttakandi í hernaðarsamfélagi þjóðanna? Jú, það er allt satt og rétt. En þessar fréttir ættu að fá okkur til að nema staðar og hugsa málin. Velta vöngum. Það var einmitt það sem ég gerði. Ég fletti upp í netinu; villtist inn í utanríkisráðuneytið og fann þar fréttatilkynningu um þessi tíðindi í Afganistan (utanrikisraduneyti.is/frettaefni/frettatilkynningar/nr/2268). Þar kom í ljós að Ísland hefði tekið við stjórn alþjóðaflugvallarins í Kabúl. Og Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra var þar viðstaddur. Þetta er stærsta verkefni "íslensku friðargæslunnar". Ísland mun gegna hlutverki "Focal Point" í fjölþjóðaliði NATO með 17 af 300 stöðugildum, yfirmaður flugvallarins, flugvallarstjórinn er enginn Halli Sigurdson ofursti heldur okkar ágæti Hallgrímur Sigurðsson sem hefur starfað á Pristinaflugvelli í Kosovo við góðan orðstír. Þar er ég kominn að kjarna minna hugsana. Í íslensku fréttatilkynningunni frá 1. júní fer lítið fyrir hermennsku. Þar koma engir aðstoðaryfirstjórnendur, aðstoðarhershöfðingjar, ofurstar eða aðrir herstjórnendur við sögu. Meira að segja aðstoðarvarnarmálaráðherra Þjóðverja kemur þar hvergi við sögu. Okkar sýn á þátttöku okkar á ekki að mengast af neinu hernaðarbrölti. Það á að læða okkur inn í hernaðarsamstarfið í rólegheitum án þess að við vitum af því. Halldóri Ásgrímssyni virðist ætla að takast það sem Björn Bjarnason dreymir um. Að stofna íslenskan her án vitundar okkar. Þetta er allt gert án þess að við vöknum af þyrnirósarsvefni vanans. Utanríkisráðuneytið sendir ekki út fréttatilkynningar um mannfall í liði ISAF í Afganistan sem er töluvert. Um það og margan annan fróðleik um baráttu þessara sveita við að verja Kabúl getum við lesið á netinu (afnorth.nato.int/ISAF/) . Í seinustu fréttum 7. júní er sagt frá minningarathöfn um norskan hermann, Tommy Roedningsby, 29 ára, sem lést í eldflaugaárás 23. maí en sú athöfn fór fram á alþjóðaflugvellinum í Kabúl. Fréttatilkynningar sem ég hef vitnað í eru lesnar af fólki út um allan heim. Bæði af fagfólki og áhugamönnum, líka af þeim sem vilja vinna Bandaríkjamönnum og þeirra bandamönnum tjón. Hvernig eru þær túlkaðar af lesendunum? Er okkur svo mikið í mun að vera með í stjörnuliði Bush, Rumsfelds og félaga? Í þessu stjörnuliði þar sem foringjarnir hafa sett upp áætlun um algjör heimsyfirráð eins stórveldis sem má nota öll meðul til að halda völdum sínum (sjá leiðara Morgunblaðsins 10. júní). Er nauðsynlegt að votta heimsveldinu "sterkan stuðning" og setja okkur undir sama hatt og þeir eins og gert er í fréttatilkynningum. Þurfum við að koma okkur upp herliði sem við lögðum áherslu á í árdaga NATO að við myndum aldrei gera. Sem var sérstaða okkar sem smáþjóðar. Kannski er hér komið efni í nýja þjóðatkvæðagreiðslu? Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson Skoðun Rauða rútan er mætt! Varist rauðu rútuna Þórður Snær Júlíusson Skoðun „Ég er bara að vera hreinskilinn“ Sigurður Árni Reynisson Skoðun Að vinna rökræður án röksemda, Þekkir þú Gish gallop tæknina? Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Sjálfstæðisbaráttan hættir aldrei Anton Kristinn Guðmundsson Skoðun Er EES biðstofa eða endastöð? Skoðun Við viljum ekki ganga í ESB Jón Ívar Einarsson Skoðun Þegar kennivald kemur í stað raka Sigurður Sigurðsson Skoðun Loddaralist í aðdraganda 29. ágúst Daði Freyr Ólafsson Skoðun Norðmenn eru farnir að horfa á okkur Baldur Johnsen Skoðun Skoðun Skoðun Hver er munurinn fyrir vinstrið á EES og ESB? Jökull Sólberg Auðunsson skrifar Skoðun Við viljum ekki ganga í ESB Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Málþing bændasamtakanna frá sjónarhóli bónda Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Rauða rútan er mætt! Varist rauðu rútuna Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Er EES biðstofa eða endastöð? skrifar Skoðun Að vinna rökræður án röksemda, Þekkir þú Gish gallop tæknina? Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Þegar kennivald kemur í stað raka Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisbaráttan hættir aldrei Anton Kristinn Guðmundsson skrifar Skoðun Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson skrifar Skoðun „Ég er bara að vera hreinskilinn“ Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Lífsgæði og samheldni íslenskrar þjóðar Bjarni Herrera skrifar Skoðun Loddaralist í aðdraganda 29. ágúst Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Norðmenn eru farnir að horfa á okkur Baldur Johnsen skrifar Skoðun Dánaraðstoð án laga, en ekki án veruleika Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Meira en bara reglur og byrðar Jóna Þórey Pétursdóttir skrifar Skoðun Þegar fyrrverandi forseti stjórnlagadómstóls stærsta hagkerfis Evrópu varar við því að ríkið sé komið að vendipunkti er ástæða til að hlusta Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Eftir almyrkvann – þakklæti og stolt Gerður B. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Erum við að fóðra glæpaheiminn og bótakerfin? Davíð Bergmann skrifar Skoðun „Voðalega er hún Anna orðin erfið“ Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Um skuldir – og þakkarskuldir Jón Baldvin Hannibalsson skrifar Skoðun Hver á hugmyndina um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugsum og spyrjum saman – Hvað þjónar Íslandi best til framtíðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Árangur íslenskra stjórnmálamanna Steinn Kári Ragnarsson skrifar Skoðun Já, vegna allra Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun Brandari dagsins Einar Helgason skrifar Skoðun Það sem aldrei hefur gerst getur hæglega gerst aftur! Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hver er raunveruleg hætta fyrir íslenskar veiðiheimildir við ESB-aðild? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Af hverju sjómenn mættu mögulega segja „já“ Kjartan Jónsson skrifar Skoðun Vélin verður sífellt klárari. En ekkert greindari. Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ég ætlaði bara að reyna skilja hvað ég væri að kjósa um Hilmar Kristinsson skrifar Sjá meira
Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson Skoðun
Skoðun Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Þegar fyrrverandi forseti stjórnlagadómstóls stærsta hagkerfis Evrópu varar við því að ríkið sé komið að vendipunkti er ástæða til að hlusta Erna Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Hver á hugmyndina um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Hugsum og spyrjum saman – Hvað þjónar Íslandi best til framtíðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Hver er raunveruleg hætta fyrir íslenskar veiðiheimildir við ESB-aðild? Þórir Garðarsson skrifar
Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson Skoðun