Sport

Erna Dögg jafnaði á 90. mínútu

Erna Dögg Sigurjónsdóttirtryggði ÍBV 1-1 jafntefli gegn sameiginlegu liði Þórs/KA/KS í fyrsta leik 5. umferðar Landsbankadeildar kvenna í dag en hún jafnaði leikinn á 90. mínútu þegar stefndi í ein óvæntustu úrslitin í sögu deildarinnar. Hin 15 ára Laufey Björnsdóttir kom Þór/KA/KS yfir í fyrri hálfleik en ÍBV-liðið náði ekki að sigrast á frábærum markverði norðanliðsins, Söndru Sigurðardóttur fyrr en á lokamínútu leiksins þegar Erna Dögg fylgdi eftir skoti Olgu Færseth. ÍBV á því enn eftir að vinna leik á útiveli í sumar en markatalan úr þremur heimasigrum liðsins er 27-1 þeim í vil. ÍBV er í öðru sæti með 11 stig, stigi á eftir Val sem á einnig leik til góða. Lið Þórs/KA/KS er komið með 5 stig og situr í 5. sæti en liðið er ósigrað á heimavelli sínum á þessu sumri.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×