Innlent

Það er kominn 17. júní

Íslendingar fagna sextíu ára lýðveldisafmæli í dag, 17. júní. Formleg hátíðarhöld hefjast nú klukkan tíu þegar forseti borgarstjórnar leggur blómsveig á leiði Jóns Sigurðssonar. Klukkan tuttugu mínútur fyrir ellefu hefst hefðbundin hátíðardagskrá við Austurvöll í Reykjavík. Davíð Oddsson forsætisráðherra og Anna Kristinsdóttir borgarfulltrúi flytja ávörp og forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson leggur blómsveig að minnisvarða Jóns Sigurðssonar. Þá flytur fjallkonan ávarp og gestir hlýða á kórsöng og lúðrasveitarleik. Fjölskylduskemmtanir og uppákomur verða víðs vegar um land í dag. Í Reykjavík leggja skrúðgöngur af stað frá Hlemmi og Hagatorgi klukkan 13:40, og keppnin Sterkasti maður Íslands hefst klukkan tvö á Miðbakka, svo fátt eitt sé nefnt. Í kvöld spila svo fjölmargar hljómsveitir á tónleikum á Arnarhóli, harmónikkuball verður í Ráðhúsi og dansleikur við Alþingishúsið. Sjá dagskrá hátíðarhaldanna í Reykjavík í dag



Fleiri fréttir

Sjá meira


×