Danska þjóðin undrandi 17. september 2004 00:01
Danska þjóðin er undrandi á fréttum um skilnað Jóakims Danaprins og Alexöndru, eiginkonu hans. Danir hafa tekið Alexöndru opnum örmum og hjónabandið, sem varað hefur í níu ár, hefur þótt vera hamingjuríkt. Orðrómur um að skilnaður væri yfirvofandi komst á kreik í morgun þegar boðað var til blaðamannafundar í dönsku konungshöllinni. Þar tók konunglegi hirðstjórinn á móti fréttamönnum og las upp formlega fréttatilkynningu um málið. Í henni kom meðal annars fram að Jóakim og Alexandra hafi, eftir erfiða íhugun, komist að þeirri sameiginlegu niðurstöðu að skilja. Þau eru sammála um skilnaðarskilmálana og munu hafa sameiginlegt forræði yfir börnunum. Jóakim, sem er 35 ára, og Alexandra, sem er fertug, kynntust í heimalandi hennar, Hong Kong, árið 1994 og giftust ári síðar. Þau eiga tvo syni, Nikolai sem er fimm ára og er númer þrjú í röðinni til að erfa dönsku krúnuna, og Felix sem er tveggja ára. Þrátt fyrir að ástæðan sem gefin er upp fyrir skilnaðinum séu miklir erfiðleikar í sambandinu virðist sem hjónin skilji í mesta bróðerni og góðu samkomulagi og Alexöndru verður ekki úthýst úr dönsku konungsfjölskyldunni. Hún heldur prinsessutitli sínum þó hún missi hinn konunglega titil og heldur áfram að gegna opinberum skyldum. Alexandra og prinsarnir tveir flytjast í íbúð fjölskyldunnar í Amalie-borg í Kaupmannahöfn en Jóakim mun eftirleiðis búa í Schackenborgar-höll þar sem þau bjuggu saman áður. Þá munu foreldrar Alexöndru halda áfram að búa í höllinni með honum. Jóakim og Alexandra buðu af sér góðan þokka þegar þau komu í fimm daga heimsókn til Íslands fyrir þremur árum og gerðu víðreist um landið.
Erlent Fréttir Mest lesið Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Erlent Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Innlent Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Veður Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Erlent Fleiri fréttir Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Sjá meira