Ólgunni linnir ekki í Írak 17. september 2004 00:01
Blóðsúthellingarnar halda áfram í Írak. Undanfarinn sólarhring hafa um hundrað manns fallið í bardögum og hryðjuverkaárásum. Í skýrslu Bandaríkjastjórnar, sem hulunni hefur verið svipt af, er varað við hættunni á borgarastríði og dregið í efa að lýðræði í Írak sé raunhæft á næstunni. Í morgun var gerð sjálfsmorðsárás í Haifa-götu, þar sem átök hafa verið algeng. Þar hafði lögreglubílum verið komið fyrir til að stöðva umferð. Bíl var ekið upp að eftirlitsstöðinni og bifreiðin sprengd í loft upp með þeim afleiðingum, að þrettán fórust, flestir þeirra lögreglumenn. Tuttugu særðust. Talsmaður heilbrigðisráðuneytisins í Bagdad segir ástæðu til að óttast að talan muni hækka, þar sem sprengjan hafi verið mjög öflug. Írakskir lögreglumenn eru ofarlega á lista hryðjuverkamanna í Írak, sem segja að lögreglumennirnir séu landráðamenn. Í gær létust um sextíu manns í árásum í borginni Fallujah á hóp sem tilheyrir öfgasinnanum Abu Musab al-Zarqawi, leiðtoga al-Qaeda í Írak. Hermt er að sextán hinna föllnu hafi verið óbreyttir borgarar. Hryna árása hefur nú staðið í Írak í um tíu daga og mannfall verið gríðarlegt. Talsmenn Varnarmálaráðuneytisins í Washington viðurkenna þetta, og að umfang uppreisnarinnar í Írak virðist fara vaxandi. Mannfall er jafnframt meira en nokkru sinni síðan stríðsátökum lauk formlega í Írak. Skýrsla þjóðarupplýsingaráðs Bandaríkjanna, sem afhent var ráðamönnum í Hvíta húsinu í júlí en hulunni hefur nú verið svipt af, varar einmitt við þessu ástandi. Þar segir að í besta falli megi gera ráð fyrir viðkvæmum stöðugleika, og í versta falli séu líkur á borgarastyrjöld. Jafnframt koma þar fram verulegar efasemdir um að hægt verði að koma á slíkum stöðugleika á næsta ári, að unnt verði að halda frjálsar kosningar. Bent er á að nútímasaga Íraks einkennist af ofbeldi og nánast engri reynslu af fulltrúalýðræði.
Erlent Fréttir Mest lesið Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent „Mér finnst það alvarlegt“ Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis Innlent Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Innlent Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Erlent Fleiri fréttir Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Sjá meira