Skilnaðurinn reiðarslag fyrir Dani 16. september 2004 00:01
Jóakim Danaprins og eiginkona hans Alexandra ætla að skilja eftir níu ára hjónaband. Fréttirnar eru reiðarslag fyrir dönsku þjóðina. Formlega var tilkynnt um skilnaðinn á blaðamannafundi í dönsku konungshöllinni í morgun. Jóakim og Alexandra giftust árið 1995 og eiga tvo syni, Nikolai sem er fimm ára og Felix, tveggja ára. Í fréttatilkynningu segir að þau hafi í sameiningu ákveðið að skilja eftir mikla og stranga erfiðleika í sambandinu. Jóakim muni eftirleiðis búa í Schackenborgar-höll en litlu prinsarnir muni búa hjá móður sinni í íbúð í Amalie-borg. Þau ætla í sameiningu að sjá um uppeldi sonanna og deila forræði þeirra. Samkvæmt talsmanni konungshallarinnar hefur Alexandra ekki í hyggju að yfirgefa Danmörku og bæði munu halda áfram að sinna opinberum skyldum sínum. Þá heldur Alexandra prinsessutitli sínum en missir hins vegar hinn konunglega titil. Alexandra er ættuð frá Hong Kong en parið kynntist þar fyrst í janúar 1994 og giftist ári síðar í Friðriksborgarhöll. Alexandra var vinsæl meðal dönsku þjóðarinnar og skilnaðurinn hefur vakið mikla undrun í Danmörku. Í fréttatilkynningunni segist parið ætíð hafa fundið fyrir velvilja í sinn garð og vonar að mæta skilningi á þessum erfiðu tímum. Jóakim og Alexandra komu í fimm daga heimsókn til Íslands fyrir þremur árum og gerðu víðreist um landið. Eldri bróðir Jóakims, Friðrik krónprins, gifti sig í maí á þessu ári. Eiginkona hans, Mary Donaldson, er frá Ástralíu. Myndin er frá blaðamannafundinum í konungshöllinni í dag.
Erlent Fréttir Mest lesið Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Innlent Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Erlent Fleiri fréttir Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Sjá meira