Innlent

Minnsti afli í 6 ár

Afli íslenskra skipa á árinu 2004 er áætlaður 1725 þúsund lestir, samkvæmt samantekt fiskistofu. Það er minnsti afli síðan 1998 þegar aflinn var 1678 þúsund lestir. Mestur var aflinn 1997 eða 2199 þúsund lestir. Þorskaflinn 2004 var 20 þúsund lestum meiri en árið 2003. Ýsu- og ufsaafli var líka talsvert meiri en árið áður. Heildarafli botnfisks jókst um rúmlega 20 þúsund lestir milli ára. Afli uppsjávartegunda minnkaði verulega frá fyrra ári. Loðnuafli var 155 þúsund lestum minni en 2003og 80 þúsund lesta samdráttur var í afla kolmunna. Þrátt fyrir minni heildarafla var aflaverðmæti ársins 2004, miðað við fast verð, áþekkt og á árinu 2003.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×