Atkvæðaseðlar í Flórída týndir 28. október 2004 00:01
Svo virðist sem megnið af 58 þúsund utankjörfundaratkvæðaseðlum í Flórída hafi týnst í pósti. Fjölmargir seðlar týndust í sýslu þar sem demókratar unnu með yfirburðum í síðustu kosningum. Vandræðagangurinn í Flórída í kosningunum árið 2000 líður mörgum seint úr minni. Langt fram eftir nóttu vissu stærstu fréttastofur Bandaríkjanna ekki í hvorn fótinn þær ættu að stíga og skiptust á að lýsa Al Gore eða George Bush sem sigurvegara í Flórída, og þar með nýjan forseta Bandaríkjanna. Þegar niðurstaðan lá loks fyrir fóru demókratar fram á endurtalningu í Flórída. Endurtalningin fór einungis fram í þeim sýslum sem demókratar töldu sig örugga með sigur í en Bush sigraði engu að síður á endanum með 537 atkvæðum. Stjórnmálaskýrendur segja margir demókrata hafa tapað á því að vera ekki heiðarlegir og biðja einfaldlega um endurtalningu í öllum sýslum Flórída. Hvað sem því líður óskar að minnsta kosti enginn þess að annar eins skrípaleikur eigi sér stað á nýjan leik, en þó hefur verið sáð í jarðveginn fyrir slíkt. Í dag bárust fréttir af tugum þúsunda utankjörfundaratkvæða sem höfðu týnst í Flórída. Yfirmenn póstsins þar hafa farið yfir málið og segja þeir að ekki sé um að kenna mistökum hjá sér og margt bendi til þess að eitthvað gruggugt sé á seyði. Þegar horft er til þess hve mjótt er á mununum í kosningabaráttunni er ljóst að atburðir sem þessir koma til með að auka líkurnar á kærum og ásökunum af hálfu þess sem bíður lægri hlut í kosningunum. Ljóst er að lýðræðið í Bandaríkjunum hefur borið nokkra hnekki í hugum fólks sem telur jafnvel ekki öruggt að atkvæði þess verði talin. Í nýrri skoðanakönnun tímaritsins Time segjast 29% aðspurðra annað hvort smeykir eða mjög smeykir um að atkvæði sitt verði ekki talið og hátt í helmingur telur líkur á því að sá sem vinni kosningarnar, verði ekki réttkjörinn forseti. Þá segjast heil 58% óttast að úrslit kosninganna verði ákvörðuð fyrir dómstólum.
Erlent Fréttir Mest lesið „Stundin sem við höfum óttast er runnin upp“ Erlent Hermenn bauluðu á Biden, Newsom og blaðamenn Erlent Vinnuslys við Suðurlandsbraut Innlent Halla flytur hátíðarávarpið í stað Kristrúnar Innlent Tók smá snúning en aftur kominn á svipaðar slóðir Innlent Undirbúa flutning þúsunda til Guantánamo Erlent Þrjú ár fyrir að svíkja út 156 milljónir og leggja inn á fjölskylduna Innlent Sigurður Fannar játar að hafa banað dóttur sinni Innlent Dagur gáttaður á Viðskiptaráði: „Leigufélögin eru ekki andskotinn sjálfur“ Innlent Aðalmeðferð hafin í máli Sigurðar Fannars Innlent Fleiri fréttir Undirbúa flutning þúsunda til Guantánamo Súdanar flýja undan sveitum Haftars „Rasísk glæpamennska“ hélt áfram á Norður-Írlandi í nótt Hermenn bauluðu á Biden, Newsom og blaðamenn Musk sér eftir sumum færslunum sem hann birti um Trump Þriggja daga þjóðarsorg í Austurríki „Stundin sem við höfum óttast er runnin upp“ Íslendingur í Graz: „Brotna niður við að hugsa um þessa foreldra“ Kona látin eftir stunguárás í Noregi Þungi færist í árásir Rússa: „Þetta er orðið partur af okkar lífi“ Rússar líta ekki lengur á Bandaríkin sem sinn helsta óvin Tíu látnir í Graz: Byssumaðurinn sagður vera gamall nemandi Rekur bólusetningaráð stjórnvalda á einu bretti Einar hörðustu árásirnar á Kænugarð til þessa Níu látnir eftir skotárás í Austurríki Hundruð milljóna um allan heim muni eignast færri börn en þau vilja Greta Thunberg á leið heim til Svíþjóðar Sendir tvö þúsund þjóðvarðliða til viðbótar til Los Angeles Sjö hundruð landgönguliðar á leið til Los Angeles Newsom ætlar að kæra Trump Sannfærð um sakleysi eiginmannsins og segir hann hetjuna sína Skotin með gúmmíkúlu í beinni frá mótmælunum Ísraelsher stöðvaði skútuna og handtók áhöfnina Telja Ísraelsher hafa umkringt bát Thunberg Forsetaframbjóðandi skotinn í höfuðið Grafalvarlegt ástand í LA: „Þetta eru einhverjar fasískar leikaðferðir“ Rannsökuðu eigin samsæriskenningar um fljúgandi furðuhluti Ísraelsmenn undirbúi árás á skútuna með Gretu Thunberg um borð Hótar Musk alvarlegum afleiðingum styðji hann Demókrata Trump sendir þjóðvarðlið til Los Angeles Sjá meira