Shrek er mættur aftur 16. júlí 2004 00:01
Græna tröllið Shrek sneri öllum sætu Disney-útgáfum gömlu ævintýranna á hvolf í drepfyndinni tölvuteiknimynd sem bar nafn hans og kom í bíó árið 2001. Shrek sló hressilega í gegn og vinsældir myndarinnar voru slíkar að framhald var óhjákvæmilegt og nú er Shrek mættur á nýjan leik ásamt hinum hundtrygga Asna og Fíónu prinsessu. Þá eru fleiri ævintýrapersónur úr fyrri myndinni að sjálfsögðu enn á kreiki og fer þar nokkuð fyrir Gosa sem er enn að ljúga og reyna að breiða yfir vafasaman nærfatasmekk sinn. Framleiðendur Shrek 2 gerðu sér þó fulla grein fyrir að það þýddi ekki að hjakka í sama farinu og því mæta fjölmargar nýjar og skemmtilegar persónur til leiks en það er ekki á neinn hallað þó það sé fullyrt að þar fari Antonio Banderas fremstur í flokki í hlutverki Stígavélakattarins. Shrek 2 hefur skilað milljónum dollara í kassann á mettíma frá frumsýningu og þriðja myndin er því að sjálfsögðu í burðarliðunum. Það voru ekki síst frábærar persónur, stórleikur Mike Meyers í hlutverki Shrek og snilldartilþrif Eddie Murphy í rullu Asnans sem gerðu Shrek að dásamlegri skemmtun fyrir börn og fullorðna en þó má ekki gleyma bráðsmellnum útúrsnúningi á gömlu ævintýrunum sem hvert mannsbarn þekkir. Þrátt fyrir fíflaganginn endaði Shrek eins og öll ævintýri eiga að gera; aðalpersónan fékk prinsessuna sína (þau voru að vísu ekki glæsimenni og þrusugella heldur tvö græn, illa lyktandi tröll) og allt benti til þess að þau myndu lifa hamingjusöm upp frá því. Að vísu ekki í höll heldur forarmýri. Handritshöfundarnir voru þarna komnir í ákveðna klemmu þar sem þeir gengu inn í ævintýraformið en þeir voru þó ekki lengi að finna snjalla útleið. "Ég gerði mér grein fyrir því að við höfðum málað okkur út í horn," segir leikstjórinn og handritshöfundurinn Andrew Adamson. "Við leyfðum Shrek að kvænast Fíónu og halda á vit hamingjunnar. Upp úr þessum vanda fundum við svo alveg nýjan vinkil þegar ég fór að hugsa um hvað gerist eftir giftinguna. Hugmyndin er þá að þegar þú gengur í hjónaband ertu ekki aðeins að gangast maka þínum á hönd heldur allri fjölskyldunni hans." Shrek þarf því núna að fara á fund tengdaforeldra sinna og þá verður hjónabandssælan skammvinn. Faðir Fíónu vill ekki sjá Shrek sem tengdason og sættir sig enn síður við að fallega dóttirin sé orðinn að skessu. Ekki bætir það úr skák að fláráð Álfadís hefur hreðjatak á konunginum og hafði gert samkomulag við hann um að Fiona giftist Draumaprinsinum, syni sínum. Kóngsi bregður því á það ráð að fá leigumorðingja, Stígvélaða köttinn, til þess að koma Shrek fyrir kattarnef. Málin þróast þó í óvæntar áttir en það er í það minnsta óhætt að segja að Asninn hitti ömmu sína í Stígvélaða kettinum þar sem nú keppa tvö þreytandi, talandi dýr um athygli Shreks og áhorfenda. Brandararnir koma, sem fyrr á færibandi, í nýju myndinni og Asninn og Kötturinn eru aðalstuðboltarnir. Höfundar Shrek 2 halda áfram að snúa út úr gömlum ævintýrum en skemmta einnig sjálfum sér og áhorfendum með snjöllum vísunum í þekktar bíómyndir og þannig má sjá persónur í kunnuglegum aðstæðum úr Lord of the Rings, Spider-Man, Mission: Impossible og svo mætti lengi telja.
Menning Mest lesið Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Lífið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Sonurinn fékk nafnið Skógur Lífið Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Fleiri fréttir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Sjá meira