Hermönnum fjölgað um tólf þúsund 4. desember 2004 00:01
Að minnsta kosti sextán létust og tugir manna slösuðust þegar tvær öflugar bílasprengjur sprungu í Bagdad, höfuðborg Íraks, í morgun. Bandarísk hernaðaryfirvöld stefna nú að því fjölga í hersetuliði sínu um tólf þúsund til að tryggja ástandið. Þá verða 150 þúsund bandarískir hermenn við störf í Írak. Þetta er annað sprengjutilræðið á jafn mörgum dögum í höfuðborg landsins. Svo virðist sem tveimur sprengjum hafi verið komið fyrir við lögreglustöð í nágrenni við græna svæðið svokallaða þar sem höfuðstöðvar bráðabirgðastjórnarinnar og erlend sendiráð eru til húsa. Gríðarlegri öryggisgæslu er haldið uppi á svæðinu. Sjónarvottar segja mikinn svartan reykjarmökk hafa lagst yfir miðborgina í kjölfar sprenginganna sem voru það öflugar að þær hreyfðu við byggingum í hundruð metra fjarlægð. Talið er að flestir hinna látnu hafi verið írakskir lögreglumenn. Í árásinni í gær dóu sextán. Vestanhafs hafa yfirmenn í Pentagon undanfarið reynt að sannfæra bandarísku þjóðina um nauðsyn þess að fjölga bandarískum hermönnum í Írak til að tryggja ástandið fyrir kosningarnar sem fram eiga að fara í næsta mánuði. Gert er ráð fyrir að 150 þúsund bandarískir hermenn verði þá að störfum í landinu. Þeir hafa þá aldrei verið fleiri, ekki einu sinni þegar innrásin var gerð í landið í mars árið 2003. Flutningarnir eru hafnir. Til dæmis hafa 200 herlögreglumenn í Kenturcky-ríki kvatt fjölskyldur sínar og haldið áleiðis til Íraks og sömu sögu er að segja í Madison-ríki.
Erlent Fréttir Írak Mest lesið Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Fleiri fréttir Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé Sjá meira