Hryðjuverkárás á Heathrow í bígerð 5. ágúst 2004 00:01
Hryðjuverkamenn ætluðu að gera árás á Heathrow-flugvöll við London samkvæmt upplýsingum frá pakistönsku leyniþjónustunni. Nýjar upplýsingar gefa einnig til kynna að Al-Kaída ætli að gera árásir á flutningaskip. Misvísandi upplýsingar berast enn í tengslum við handtökurnar á meintum hryðjuverkamönnum í Bretlandi síðustu daga. Upphaflega voru mennirnir þrettán en einum var sleppt úr haldi. Tólf menn sitja enn í haldi og er talið að einn þeirra sé háttsettur meðlimur úr hryðjuverkasamtökunum Al-Kaída. Annar háttsettur meðlimur úr samtökunum, Naeem Noor Khan, var handtekinn í Pakistan í byrjun júlí. Hann er tölvunarfræðingur og upplýsingar sem náðust úr tölvunum hans gefa til kynna að Khan hafi átt þátt í að undirbúa árásir á Heathrow- flugvöll í London. Upplýsingar um mennina tólf í Bretlandi fundust í gögnum Khans að sögn talsmanna leyniþjónustu Pakistans. Mennirnir tóku líklega þátt í að undirbúa árás á flugvöllinn en tölvupóstur hafði gengið á milli Khans og einhverra manna í hópnum. Nýjar upplýsingar benda til að Al-Kaída hafi einnig ætlað að gera árás á flutningaskip til að trufla eða hafa neikvæð áhrif á heimsverslun. Að sögn talsmanns breska sjóhersins er talin mikil hætta stafa af mögulegum árásum á skip en engar frekari upplýsingar fengust um það hvort árásahættan væri bundin við bresk skip. Meðfylgjandi mynd er af Naeem Noor Khan.
Erlent Fréttir Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent „Fólk er bara slegið“ Innlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Fleiri fréttir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Sjá meira