Ekkert ákveðið um frekari aðstoð 31. desember 2004 00:01
Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir að ákvörðun um frekari fjárhagsaðstoð íslenskra stjórnvalda vegna flóðanna við Indlandshaf verði tekin í byrjun nýs árs. Þegar hefur verið safnað tugum milljóna hér á landi. Ríkisstjórnin hefur boðið Norðurlöndunum aðstoð við að flytja slasaða frá hamfarasvæðunum. Ríkisstjórnin kom saman á ríkisráðsfundi að Bessastöðum klukkan hálfellefu í morgun en áður en hann hófst var boðað til stutts ríkisstjórnarfundar,. Á ríkisráðsfundinum var farið yfir þau lagafrumvörp sem lögð hafa verið fram á Alþingi í vetur og og þau lögð fyrir forseta Íslands til staðfestingar. Á fundi ríkisstjórnarinnar var eitt mál á dagskrá: neyðaraðstoð íslenskra stjórnvalda vegna hamfaraflóðanna við Indlandshaf. Forsætisráðherra segir að þar hafi verið staðfest fjárframlag upp á fimm milljónir til Rauða krossins en málið verði rætt frekar í byrjun ársins. Halldór segir ekki liggja fyrir hugmyndir um aukið framlag en ráðstefna á vegum Sameinuðu þjóðanna verði haldin um framlög frá ríkjum heimsins. Auk þess sé að hefjast starf í Srí Lanka og gerður verði samningur við stjórnvöld þar um þessi mál. „Ég býst við að við einbeitum okkur sérstaklega að Srí Lanka í þessu sambandi,“ segir Halldór. Ríkisstjórnin hefur boðið Norðurlöndunum aðstoð við að flytja slasaða frá hamfarasvæðunum. Halldór segir að á hinum Norðurlöndunum hafi ávallt verið brugðist vel við þegar Íslendingar hafi átt um sárt að binda. Því sé eðlilegt að við endurgjöldum það og sýnum hug okkar í þessu sambandi. „Ég vil líka minna á að flaggað verður í hálfa stöng á öllum opinberum byggingum á morgun og vil hvetja landsmenn til að gera hið sama,“ segir Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra.
Asía - hamfarir Fréttir Innlent Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Sjá meira