Skoteldar tendraðir með varúð 31. desember 2004 00:01 MYND/Páll Bergmann
Að vanda verður árið kvatt með tilheyrandi sprengjulátum hér á Íslandi. Veðurspáin er ekkert alltof góð en búist er við stormi á Suður- og Vesturlandi síðdegis en norðan og austanlands í kvöld og nótt. Óskar Bjartmarz, varðstjóri hjá lögreglunni í Reykjavík, biður fólk að fara að reglum um meðferð skotelda og hafa aðstæður í huga. Þá segir hann foreldra bera ábyrgð á börnum sínum og hvetur þá til að fylgjast vel með þeim þessa dagana. Fikt barna með skotelda getur haft alvarlegar afleiðingar. Í gær urðu t.a.m. tvö talsvert alvarleg slys þar sem unglingar voru að taka púður úr skotkökum til að búa til annars konar sprengjur með þeim afleiðingum að sprengiefnið sprakk í andlitið á þeim. Uppgötvast hefur að Landsbjörg hefur selt eitthvað af gölluðum flugeldum sem kallast „Hnífur“. Þeir hafa gert ráðstafanir í því sambandi og innkallað þá gölluðu flugelda sem sendir hafa verið í sölu víða um land. Landsbjörg leggur áherslu á að þeir sem hafi keypt þessa flugelda skili þeim á næsta sölustað og fái annað hvort endurgreitt eða inneign fyrir öðrum flugeldum. Valgeir Elíasson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir björgunarsveitirnar mjög ánægðar með sölu flugelda og jafnvel er búist að salan aukist frá síðasta ári, sem aftur var metár. Í það minnsta virðist greinilegt að Íslendingar láta ekki leiðindaveðurspá hamla flugeldagleðinni.
Fréttir Innlent Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Margaret Hamilton er látin Erlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Fleiri fréttir Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Sjá meira