Erlent

Sprengjutilræði í hollenskum skóla

Sprengja var sprengd í anddyri múslimsks skóla í Eindhoven í Hollandi í nótt en engan sakaði. Talið er líklegt að verknaðurinn tengist morðinu á kvikmyndaframleiðandanum Theo Van Gogh í síðustu viku en hann var gagnrýnn á múhameðstrúarmenn í myndum sínum. Í kjölfarið hafa verið gerðar margar minniháttar árásir á opinberar byggingar múslima í Hollandi en þeir eru sex prósent þjóðarinnar. Skoðanakannanir í landinu sýna vaxandi andstöðu gegn þeim og innflytjendum yfirleitt.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×