Erlent

Kornabarn kom í leitirnar

Áströlsk móðir er himinlifandi eftir að þriggja vikna dóttir hennar, sem var rænt frá henni fyrir utan verslunarmiðstöð í Melborne í Ástralíu í fyrrakvöld, kom í leitirnar. Karl og kona á þrítugsaldri rændu barninu. Nafnlaus ábending barst um að stúlkan væri í mannlausu húsi í norðurhluta borgarinnar. Fagnaðarfundir urðu við barnaspítala þegar móðirin vafði barnið aftur örmum. Afi stúlkunnar segir að ræningjarnir hafi ekki gert henni mein, þótt þeir hafi af einhverjum ástæðum rakað hár af höfði hennar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×