Blóðug borgarastyrjöld framundan? 26. september 2004 00:01
Blóðug borgarastyrjöld gæti brotist út í Súdan takist ekki að semja frið í Darfur-héraði innan skamms. Hundruð þúsunda flóttamanna halda enn til í flóttamannabúðum og fleiri eru á leiðinni. Ruud Lubber, yfirmaður flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna, hefur um helgina kannað ástandið í flóttamannabúðum í Chad þar sem hundruð þúsunda flóttamanna frá Darfur-héraði í Súdan halda til. Að hans mati dugir ekkert annað en sjálfstjórn fyrir íbúa Darfur til að binda enda á hörmungarástandið þar. Aðspurður hvort hann telji meiri stöðugleika í Darfur hugsanlega leiða til þess að fleiri reyndu að komast þaðan segir Lubber að þá megi búast við að hin hundrað þúsundin muni koma, og fleiri fylgi á eftir. „En þegar allt kemur til alls getur lausnin ekki falist í skipulagningu. Hún verður að felast í tafarlausu vopnahléi og síðan einhverri von um friðsamlega framtíð í Darfur,“ segir Lubber. Í flóttamannabúðunum er búist við fleiri flóttamönnum í kjölfar þess að regntímabilinu er lokið og eftir að stjórnvöld lofuðu að taka á skæruliðum sem ráðist hafa á Darfur-búa á flótta. Í friðarviðræðun deilenda gengur hvorki né rekur. Fulltrúi Sameinuðu þjóðanna í Súdan sagðist í vikunni óttast blóðuga borgarastyrjöld tækist ekki að ná einhvers konar friðarsamkomulagi á næstunni. Hann óttast að ástandið yrði þá sambærilegt við hörmungarnar í Sómalíu. Talið er að fimmtíu þúsund hafi fallið í átökum í héraðinu og vel á aðra milljón hefur flúið undan Janjaweed-skæruliðum, arabískum sveitum sem fullyrt er að fremji þjóðarmorð í Darfur með samþykki stjórnvalda í Khartoum. Á myndinni sést Ruud Lubber á tali við flóttamenn í Riyad-búðunum í Darfur.
Erlent Fréttir Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Fleiri fréttir Sækir aftur um reynslulausn Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar Sjá meira