Erlent

Tveir hafa látist á Flórída

Að minnsta kosti tveir hafa látist á Flórída í dag en fellibylurinn Jeanne gekk þar á land snemma í morgun. Jeanne er fjórði fellibylurinn sem gengur yfir Flórídabúa á örfáum vikum. Þetta er reyndar í fyrsta sinn síðan mælingar hófust árið 1851 að fjórir fellibyljir hafa gengið yfir eitt og sama ríkið í Bandaríkjunum á einu og sama fellibyljatímabilinu, sem stendur frá júní til nóvemberloka.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×